Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Pylsugerðarnámskeið

Langar þig að læra að gera bragðmiklar pylsur frá grunni? Á þessu verklega námskeiði lærir þú allt ferlið, frá vali á kjöti og réttu fituhlutfalli yfir í fullkomna steikingu og eldun. Þú færð innsýn í fagleg vinnubrögð landsliðsins og lærir að búa til „gourmet“ pylsur sem þú getur auðveldlega gert sjálfur heima í þínu eldhúsi. Engin fyrri reynsla nauðsynleg, bara áhugi.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað matgæðingum, heimakokkum og öllum sem hafa áhuga á góðu hráefni og vandaðri matargerð.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu og færni til að útbúa pylsur frá grunni heima hjá sér.

Farið er yfir rétta meðhöndlun hráefnis.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Val á kjöti og rétt fituhlutfall
  • Hlutverk salts og próteina í farsgerð
  • Rétta meðhöndlun og hitastýringu hráefnis
  • Kryddun og jafnvægi bragða
  • Sprautun í garnir
  • Eldun
  • Hvernig laga má uppskriftir að eigin smekk

Áhersla er á verklega vinnu og að þátttakendur fari heim með þekkingu sem nýtist strax í eigin eldhúsi.

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Sett saman eigin uppskrift
  • Fullunnið gæða pylsur heima hjá sér
Hefst
21. mars 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar