Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Nýjungar í auglýsingaprenti

Á þessum fyrirlestri verður kynnt nýjasta þróun og tæknilausnir í skiltagerð, prentun á bylgjupappa og filmuásetningum. Þátttakendur fá innsýn í ný efni, aðferðir og möguleika sem eru að móta auglýsingaprent í dag. Annar fyrirlestur verður haldinn þar sem áherslan verður frekar á persónumerkingar og textílprent.

Fyrir hverja:

Fyrirlesturinn hentar öllum sem starfa við eða hafa áhuga á prentiðnaði, skiltagerð, merkingum, textílprentun og umbúðagerð og vilja fylgjast með nýjustu straumum og nýta þá í sinni starfsemi.

Markmið:

Markmið fyrirlestursins er að kynna nýjustu þróun og tæknilausnir í skiltagerð, prentun á bylgjupappa og filmuásetningum. Þátttakendur fá innsýn í ný efni, aðferðir og möguleika sem eru að móta auglýsingaprent í dag.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Helstu nýjungar frá FESPA ráðstefnunni
  • Þróun í skiltagerð og stórprenti
  • Prentun á bylgjupappa og umbúðir
  • Ný efni og yfirborðslausnir
  • Framfarir í filmuásetningum og merkingum
  • Hagnýt dæmi um notkun nýrrar tækni

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Þekkja nýjustu lausnir í skiltagerð og umbúðaprentun
  • Hafa yfirsýn yfir þróun í efnum og tækni
  • Geta metið hvernig nýjungar nýtast í eigin verkefnum
  • Skilja möguleika filmuásetninga og yfirborðsmerkinga

Aðrar upplýsingar:

Efnið byggir á samantekt Sæmundar Freys Árnasonar á nýjungum sem kynntar voru á alþjóðlegri FESPA ráðstefnunni í Barcelona, þar sem fremstu sérfræðingar heims í prent-, merkinga- og sjónrænum samskiptum kynntu nýjustu þróun.

Hefst
1. sept. 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar