Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Hreyfihönnun frá A-Ö

Grunnatriði í gerð hreyfimynda með Adobe After Effects. Nemendur læra að hanna einfaldar hreyfimyndir sem fanga athygli og nýtast í markaðsstarfi fyrirtækja eða fjölmiðlum. Einnig verður farið í möguleika annarra forrita, svo sem Figma og hvernig nýta má það í gerð hreyfihönnunar t.a.m. vefborða.

Fyrir hverja:

Námskeiðið er ætlað prentsmiðum, grafískum hönnuðum og öllum sem starfa í tengdum greinum innan prentiðnaðar og hönnunar. Einnig hentar það þeim sem vilja bæta við sig þekkingu og færni í hreyfihönnun og markaðsmiðlun á stafrænum vettvangi.

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur læri að hanna og framleiða einfaldar hreyfimyndir sem fanga athygli og nýtast í markaðsstarfi fyrirtækja eða fjölmiðlum.

Þátttakendur öðlast grunnfærni í notkun Adobe After Effects og fá innsýn í hvernig nýta má önnur forrit, svo sem Figma, við gerð hreyfihönnunar – til dæmis fyrir vefborða og auglýsingar.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Grunnatriði í hreyfihönnun og uppbyggingu hreyfimynda
  • Notkun og viðmót Adobe After Effects
  • Samspil texta, myndar og hljóðs í hreyfihönnun
  • Hagnýtar æfingar í gerð einfaldra markaðsmynda og vefborða
  • Möguleika í Figma og tengingu við hreyfihönnun
  • Ábendingar um góð vinnubrögð í framleiðslu og miðlun efnis

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta hannað og framleitt einfaldar hreyfimyndir í After Effects
  • Þekkja helstu verkfæri og vinnuferla forritsins
  • Skilja hvernig nýta má hreyfihönnun í markaðsstarfi og stafrænum miðlum
  • Hafa lagt góðan grunn að frekari þróun í hreyfihönnun og skapandi vinnu með stafrænu efni

Aðrar upplýsingar:

Kennari á námskeiðinu er Steinar Júlíusson, reynslumikill og farsæll hreyfihönnuður.

Hann hefur starfað fyrir H&M, Acne Stockholm, Unicef á Íslandi, Borgarleikhúsið og Absolut Vodka, auk þess að hafa kennt við Listaháskóla Íslands og hinn virta Berghs School of Communication í Stokkhólmi.

Þeir sem taka þátt í fjarnámi þurfa að hafa aðgang að Adobe After Effects á eigin tölvu.

Hefst
1. sept. 2026
Tegund
Staðnám og fjarnám
Tímalengd
3 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar