Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Íslenska talþjálfun 3-4 (A2.2)

Á námskeiðinu nærð þú enn betri tökum á að skilja og tala íslensku. Með markvissum æfingum og þjálfun byggir þú upp öryggi í að tjá þig reiprennandi á íslensku, bæði í samtölum og frásögn.

Um námskeiðið

Námskeiðið Íslenska talþjálfun 3-4 er sérsniðið fyrir þig sem vilt ná betri tökum á margvíslegum samskiptum á íslensku.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á fjölbreytt verkefni og æfingar sem þjálfa framburð, samræður, málfræði og setningagerð.

Íslenska talþjálfun 3-4 er framhaldsnámskeið á stigi A2.1-A2.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Þú getur skoðað rammann betur hér.

Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda tryggð svo að íslenskunámið verði árangursríkt og skemmtilegt.

Áhersla námskeiðsins

  • Þjálfa tal á fjölbreyttan hátt: Við leggjum áherslu á talþjálfun og samskiptafærni sem hjálpar þér að tjá þig hiklaust í fjölbreyttum aðstæðum. Þú æfir jafnt formlegt sem óformlegt tal í samtölum, umræðum og frásögnum.
  • Skerpa á íslenskum framburði: Réttur framburður er æfður út frá þjálfun í skilningi og  flæði í samskiptum.
  • Auka sjálfstraust þitt í að tala íslensku: Þú byggir upp aukið sjálfstraust til að nota íslensku í öllum mögulegum aðstæðum.
  • Þjálfun í að nota málfræði: Flóknari málfræði er skoðuð og dýpkuð í tengslum við talæfingar og fyrri kunnáttu nemenda.**
  • Fá ráðgjöf um næstu skref: Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að vera fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.

**Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.

Fyrir hverja?

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2 og 3 (120 klukkustundir) eða sambærileg kunnátta. Námskeiðið er kennt á íslensku. Þátttakendur verða að geta tjáð sig á auðskiljanlegri íslensku og tekið þátt í einföldum umræðum. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.

Hefst
9. nóv. 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar