Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Dyravarðanámskeið

 

Dyravarðanámskeið Mímis er hagnýtt nám sem styrkir þig í starfi og veitir þér réttindi* til að starfa sem dyravörður. Þetta er tækifæri fyrir þig til að efla þig í öryggisgeiranum með faglegri þekkingu.

*Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gefur út dyravarðaskírteini.

Fyrir hverja? 

  • Námskeiðið er ætlað starfandi dyravörðum og öllum þeim sem hyggjast starfa við dyravörslu.
  • Auk þess er námskeiðið hentugt fyrir:
  • Starfsfólk hótela sem vill auka vitund sína og færni á sviði öryggismála.
  • Fólk sem starfar við öryggisgæslu í verslunum og fyrirtækjum og vill efla færni sína í öryggismálum.

Um námskeiðið

Þetta námskeið fyrir dyraverði er haldið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu sem tryggir áreiðanleika. Námskeiðið er hannað til að styrkja þig í starfi á fjölbreyttan hátt.

Til að útskrifast og öðlast réttindi sem dyravörður er nauðsynlegt að ná 80% mætingu. Þetta tryggir líka að þú fáir sem mest út úr náminu og sért vel undirbúin/n/ð fyrir starfið.

Námsgreinar

  • Ábyrgð og hlutverk dyravarða
  • Fyrsta hjálp
  • Fjölmenning
  • Brunavarnir
  • Sjálfsvörn
  • Kynning á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis

 

Hefst
12. okt. 2026
Tegund
Staðnám
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Mímir - símenntun