Akademias
Akademias
Akademias

Hinn fullkomni karlmaður

Hinn fullkomni karlmaður, er stórskemmtilegur og hugvíkkandi fyrirlestur sem fjallar um karlmennsku í samtímanum á víðan og fjölbreyttan hátt – og einblínir á „jákvæða karlmennsku“. Hvernig eigum við að hugsa um karlmennskuna, bæta hana og efla – og vera með karlmönnum í liði? Hvernig líta fyrirmyndir ungra karlmanna út í dag, ef þær eru þá til?

Um hvað er námskeiðið?
Sverrir leiðbeinandi leitar víða fanga, meðal annars í eigið líf, og ferðast með áheyrendum í námskeiðinu inn á heimilið, á vinnustaði, aftur í aldir og inn í framtíðina.
Meðal annars er fjallað um jákvæða karlmennsku, feðraveldi, tilfinningalega byrði, femínisma og eitraða karlmennsku.
Og karlmenn í aldanna rás, karlmenn og; föðurhlutverkið, leiðtogahlutverkið, heimilið, líkamann, útlitið, konur, náttúruna og loks karlmenn og framtíðina.
 
Fyrir hverja?
Fyrir alla þá sem vilja fræðast um jákvæða karlmennsku, uppgötva hvernig hinn fullkomni karlmaður er – og hlusta á skemmtilegan og hugvíkkandi fyrirlestur 


Námskaflar og tími:
  • Engar góðar fyrirmyndir? - 16 mínútur
  • Leitin að hinum fullkomna karlmanni - 13 mínútur
  • Karlmenn í ólíkum hlutverkum, fyrri hluti - 11 mínútur
  • Karlmenn í ólíkum hlutverkum, seinni hluti - 12 mínútur
  • Hvað er þá jákvæð karlmennska? - 8 mínútur
Heildarlengd:
60 mínútur

Textun í boði:
Enska og íslenska

Leiðbeinandi:

Sverrir Norland

Sverrir Norland er rithöfundur, fyrirlesari, útgefandi og fjölmiðlamaður. Sverrir hefur áralanga reynslu af framkomu; á sviði, í sjónvarpi og í útvarpi.
Tegund
Fjarnám
Verð
24.000 kr.
Fáðu 10% afslátt af námskeiðinu. Smelltu á hnappinn hér að neðan og sláðu inn afsláttarkóðann við greiðslu: Alfred
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar