Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ
Endurmenntun HÍ

Fjármál og rekstur

Á námskeiðinu er lögð er áhersla á arðsemi og val á mismunandi leiðum við ábyrga stjórnun fjármuna og stýringu verkefna. Þátttakendur munu kynnast fjölbreyttum aðferðum til að takast á við helstu verkefni sem koma við sögu í rekstri fyrirtækja og stofnana.

Námskeiðið skiptist í þrjá megin hluta.
1.    Skipulag og stjórnun, kennari Einar Birkir Einarsson
2.    Bókhald og ársreikninga, kennari Bjarni Frímann Karlsson
3.    Fjármálastjórnun, kennari Jón Arnar Baldurs

Námskeiðinu er ætlað að veita góða innsýn inn í þessa þrjá lykilþætti rekstar. Námskeiðið er hugsað fyrir aðila sem hafa ekki endilega menntun á sviði viðskipta en eru að taka skref eða ábyrgð í þá átt.  Námskeiðið nýtist einnig vel fyrir þá sem vilja kynna sér þennan vettvang og öðlast meiri skilning á fjármálum og rekstri.

Í fyrsta hluta verður farið yfir skipulag fyrirtækja, hvaða tegundir skipulags henti mismunandi ytri aðstæðum og hvað einkennir fyrirtæki á mismunandi aldursskeiði þeirra.  Þá verður farið yfir greiningu og flokkun verkefna og hvernig mikilvægustu verkefnin eru forgangsröðuð og meðhöndluð. Einnig verður farið í stofnun verkefnahópa sem skila bestum árangri. Þá verður kenndur grunnurinn í Agile verkefnastjórnun með áherslu á Kanban og Scrum. Lögð er áhersla á virka þátttöku og gerðar verða hagnýtar æfingar til að leggja áherslu á mikilvægustu atriði við stýringu verkefna.

Í hluta tvö verður farið í grunnatriði við fyrirkomulag reikningshalds. Skýrður munurinn á rekstrarbókhaldi og fjárhagsbókhaldi. Í tengslum við rekstrarbókhaldið verður einkum fjallað um eðli og hegðun kostnaðar og verkbókhald. Einnig fjallað um hugtakið hagkvæmni. Hvað varðar fjárhagsbókhaldið þá verður lögð áhersla á lestur ársreikninga, uppbyggingu þeirra og innbyrðis samhengi. Einnig kynntar helstu aðferðir við greiningu þeirra, þ.e. „að lesa á milli línanna“ í ársreikningi.

Í síðasta hluta námskeiðsins er farið yfir stjórnun fjármála, fjármögnun og áætlanagerð hvort heldur fyrir verkefni eða fyrirtæki. Þá verður farið yfir helstu hugtök í kostnaðargreiningu, kennitölur rekstra, áhættumat og virðisgreiningu. Farið verður í mat á fjárfestingum, framlegð og vextir og aðferð núvirðingar beitt. Þá verður farið yfir helstu aðferðir og sjónarhorn við verðmat fyrirtækja. Unnin eru lítil verkefni til að kynna og þjálfa helstu hugtök og aðferðir og umræður tengdar við dagleg verkefni eða störf þátttakenda sem það kjósa.

Hefst
29. sept. 2025
Tegund
Staðnám og fjarnám
Verð
295.000 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Endurmenntun HÍ
Undraheimur Þingvalla
Endurmenntun HÍ
Staðnám22. sept.36.200 kr.
Á tímamótum: Fjármál við starfslok
Endurmenntun HÍ
Staðnám22. sept.24.100 kr.
Greindu rót vandans með gervigreind
Endurmenntun HÍ
Staðnám22. sept.63.400 kr.
Lifðu í sátt - lærðu að nota aðferðir ACT
Endurmenntun HÍ
Staðnám22. sept.65.900 kr.
Lagasmíðar og pródúsering
Endurmenntun HÍ
Staðnám24. sept.189.900 kr.
Iðjuþjálfun í blóma: Tækifæri í öldrunarþjónustu
Endurmenntun HÍ
Fjarnám29. sept.44.900 kr.
Ný hugsun - Nýtt líf
Endurmenntun HÍ
Staðnám22. okt.36.900 kr.
Árangursríkari starfsmannasamtöl
Endurmenntun HÍ
Fjarnám22. okt.35.900 kr.
Nærvera - að hlúa að sjálfum sér og öðrum
Endurmenntun HÍ
Fjarnám21. okt.31.500 kr.
Madeira - Eyjan sígræna
Endurmenntun HÍ
Staðnám21. okt.21.900 kr.
Lestur ársreikninga
Endurmenntun HÍ
Fjarnám21. okt.55.900 kr.
Kærleiksrík mörk í uppeldi leikskólabarna
Endurmenntun HÍ
Staðnám21. okt.26.900 kr.
Spænska II
Endurmenntun HÍ
Staðnám20. okt.64.900 kr.
Sálgæsla og áfallahjálp
Endurmenntun HÍ
Staðnám20. okt.54.900 kr.
Fötluð börn og farsældarlögin
Endurmenntun HÍ
Staðnám17. okt.41.900 kr.
Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun
Endurmenntun HÍ
Staðnám07. okt.69.600 kr.
Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin
Endurmenntun HÍ
Staðnám03. okt.34.500 kr.
Hámörkum árangur með gervigreind
Endurmenntun HÍ
Staðnám01. okt.65.500 kr.
Með hjartað í frístundastarfinu
Endurmenntun HÍ
Fjarnám09. okt.11.000 kr.
Gervigreind fyrir kennara
Endurmenntun HÍ
17. okt.47.900 kr.
Agile verkefnastjórnun
Endurmenntun HÍ
Staðnám17. okt.38.900 kr.
Skipulagsmál
Endurmenntun HÍ
Fjarnám16. okt.31.400 kr.
Viðbrögð við tilkynningu um EKKO á vinnustað
Endurmenntun HÍ
Staðnám16. okt.38.900 kr.
Jákvæðari menning í kennslustofunni
Endurmenntun HÍ
Fjarnám14. okt.37.900 kr.
Skynjun og skynörvun
Endurmenntun HÍ
Staðnám13. okt.34.900 kr.
TRAS og grunnskólinn
Endurmenntun HÍ
Fjarnám13. okt.26.900 kr.