Félagsráðgjafi í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðsviðs
Spennandi starf fyrir félagsráðgjafa í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðsviðs við Hringbraut er laust til umsóknar hjá félagsráðgjafaþjónustu Landspítala. Í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðsviðs (áður bráðamóttaka geðþjónustu) ríkir góður starfsandi og starfsemin einkennist af öflugri þverfaglegri teymisvinnu, sjálfsstæði í starfi, stöðugri þróun og fjölbreytni. Á deildinni eru ótalmörg tækifæri til að vaxa í starfi og dýpka þekkingu sína og færni sem félagsráðgjafi. Markviss aðlögun og stuðningur í upphafi starfs.
Starfsemi bráða- og ráðgjafaþjónustunnar er fjórþætt:
- Bráðamóttaka sjúklinga sem eiga við bráð geðræn veikindi að stríða
- Skammtíma eftirfylgd eftir komu í bráðaþjónustu
- Ráðgjafaþjónusta fyrir bráðamóttöku í Fossvogi
- Ráðgjafaþjónusta fyrir legudeildir Landspítala
Til bráða- og ráðgjafaþjónustunnar leita um 3.200 einstaklingar á ári hverju.
Starfshlutfall er 80-100% og er að mestu um dagvinnu að ræða, helgarvakt u.þ.b. sjöttu hverja helgi og eina vakt frá kl. 12-20 á viku. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Á Landspítala starfa um 50 félagsráðgjafar sem sinna margþættri þjónustu við sjúklinga á öllum sviðum spítalans. Félagsráðgjafar starfa í nánu samstarfi við annað starfsfólk spítalans og lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu. Landspítali er fjölskylduvænn vinnustaður og býður upp á heilsueflandi vinnuumhverfi, samgöngusamninga og styttingu vinnuvikunnar.