Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á geðgjörgæslu Landspítala
Geðgjörgæslan við Hringbraut vill ráða áhugasaman og kraftmikinn hjúkrunarfræðing í stöðu aðstoðardeildarstjóra í afleysingu til eins árs frá 6. ágúst 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Um fullt starf er að ræða. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða samskiptahæfni og vera tilbúinn til þess að taka þátt í og leiða öfluga teymisvinnu.
Á geðgjörgæslunni er veitt sérhæfð þjónusta í meðferð og umönnun einstaklinga með bráð geðræn einkenni vegna geðraskana. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar og hugmyndafræði um geðgjörgæslu eru í fyrirrúmi ásamt góðu samstarfi við aðstandendur.
Á deildinni starfa um 50 starfsmenn í þverfaglegu teymi. Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda. Tækifæri til sérhæfingar eru mörg og því spennandi vettvangur fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á að dýpka þekkingu sína í geðhjúkrun og öðlast dýrmæta reynslu í hjúkrunarstjórnun.