Félagsráðgjafi á Landspítala
Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum félagsráðgjafa til starfa á Landspítala. Viðkomandi þarf að búa yfir færni til að vinna að lausnum og hafa metnað til að veita framúrskarandi þjónustu.
Um er að ræða faglega krefjandi störf á spennandi vettvangi fyrir félagsráðgjafa sem hafa áhuga á nýsköpun og framþróun í starfi. Störfin eru við ólíkar einingar innan Landspítala. Starfshlutfall er 80-100% og eru störfin laus samkvæmt samkomulagi.
Meginhlutverkið er að veita sjúklingum og aðstandendum þeirra stuðning til þess að takast á við breytingar sem verða í kjölfar veikinda og afleiðingar þess, kortleggja þjónustuþörf sjúklinga og veita þeim og fjölskyldum þeirra upplýsingar um félagsleg réttindi, aðstoða við útskriftir og tengingar við önnur þjónustukerfi. Áhersla er á stuðning við fjölskyldur, og stuðning við börn sem aðstandendur á grundvelli laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Taka þátt í þróunarverkefnum sem efla þjónustu við sjúklinga og vera í samstarfi við aðra fagaðila sem koma að málum sjúklinga og aðstandenda. Félagsráðgjafi er þátttakandi í samstarfi við ólíkar starfsstéttir spítalans þar sem lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu, fjölskyldumiðaða nálgun og gagnreynd vinnubrögð. Lögð er áhersla á handleiðslu og tækifæri starfsmanna til sí- og endurmenntunar. Landspítali styður nýútskrifaða félagsráðgjafa í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Á Landspítala starfa um 50 félagsráðgjafar sem sinna margþættri þjónustu við sjúklinga á mismunandi deildum. Félagsráðgjafar starfa í nánu samstarfi við annað starfsfólk spítalans og lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu. Landspítali er fjölskylduvænn vinnustaður og býður upp á heilsueflandi vinnuumhverfi, samgöngusamninga og styttingu vinnuvikunnar.