JYSK
JYSK er hluti af alþjóðlegu verslunarkeðjunni JYSK. Fyrsta verslunin var opnuð á Íslandi árið 1987 af þeim Jákup Jacobsen og Jákupi N. Purkhús og hét þá Rúmfatalagerinn. Í dag eru verslanir JYSK 7 talsins ásamt vefverslun og vöruhúsi. Verslanir eru staðsettar á Smáratorgi, Skeifunni, Granda, Bíldshöfða, Selfossi, Reykjanesbæ og Akureyri.
JYSK hefur verið leiðandi á lágvöruverðsmarkaðnum á Íslandi frá upphafi. JYSK hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða frábært vöruúrval, góða þjónustu ásamt því að vera ávallt með góð tilboð.
Aðstoðarverslunarstjóri á Akureyri
Verslun okkar á Akureyri leitar eftir leiðtoga í stöðu aðstoðarverslunarstjóra.
Við leitum að árangursdrifnum og metnaðarfullum leiðtoga til að stýra verslun okkar á Akureyri. Viðkomandi þarf að tryggja framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini okkar og vera leiðtogi og fyrirmynd starfsfólks. Unnið er á virkum dögum með einhverri viðveru um helgar.
Um 100% starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri verslunarinnar ásamt verslunarstjóra
- Verkefnastjórnun
- Útlit og framstilling
- Sala og fagleg ráðgjöf til viðskiptavina
- Þjálfun starfsfólks
- Styðja við störf verslunarstjóra og sjá um afleysingar þegar þörf er á
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verslunarstjórn eða rekstri
- Reynsla af sölu- og þjónustustörfum
- Rík þjónustulund og skilningur á þörfum viðskiptavina
- Metnaður og frumkvæði
- Skipulögð og vönduð vinnubrögð
- Geta til að vinna sjálfstætt og undir álagi
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Auglýsing stofnuð24. apríl 2024
Umsóknarfrestur10. maí 2024
Staðsetning
Austursíða 2, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSölumennskaVerkefnastjórnunVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Sumarstarf á Akureyri
Þór hf
Lyfja Reyðarfiriði - Sala og þjónusta, framtíðarstarf
Lyfja
Starfsfólk í verslun
Hugsum búð upp á nýtt
Verslunarstjóri
Hugsum búð upp á nýtt
Starfsmaður í Auka- og varahlutaverslun
Toyota
Sölu- og þjónustustjóri Kaffiþjónustu Innnes
Innnes ehf.
Sölufulltrúar-helgarstarf Skeifan
ELKO
Dagvinna vinnutími 11-17 alla virka daga
Gullnesti Ehf
Skemmtileg afgreiðslustörf á Suðurnesjunum
Heimkaup ehf.
Sölu og þjónustustarf – Hlutastarf og sumarafleysing
Barnið Okkar
Aðstoðarverslunarstjóri Fitjar (Reykjanesbæ)
Krónan
Icewear Þingvöllum óskar eftir starfsfólki
ICEWEAR