Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur í umhverfismálum

Brennur þú fyrir umhverfismálum og hefur áhuga að starfa í öflugu teymi í líflegu og einstöku starfsumhverfi? Við erum að leita að einstaklingi sem býr yfir krafti og metnaði til að ná árangi í umhverfismálum og vill slást í för með okkur. Viðkomandi mun starfa í deild umhverfismála á skrifstofu forstjóra og mun vinna að framkvæmd og eftirliti með umhverfismálum félagsins í samræmi við stefnu og aðgerðaráætlun í málaflokknum.

Helstu verkefni:

  • Ber ábyrgð á umhverfisstjórnunarkerfi
  • Vinnur að framfylgd stuðningsstefnu um sjálfbærni
  • Vinnur umhverfisverkefni í samræmi við stefnu og aðgerðaráætlun
  • Gagnaöflun, framsetning gagna og eftirlit með umhverfismælingum
  • Samstarf og samráð við hagaðila
  • Stuðla að aukinni umhverfisvitund hagaðila

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. nám í umhverfis- og auðlindafræði
  • Góð þekking og áhugi á umhverfismálum og málefnum tengt starfinu
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Áhugi á sjálfbærni og vilji til að læra og þroskast í starfi skilyrði
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt hugarfar og þjónustulund
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti

Starfsstöð er í Hafnarfirði.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í hádeginu, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 10.maí 2024.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Egill Björn Thorstensen, í gegnum netfang egill.thorstensen@isavia.is.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Auglýsing stofnuð26. apríl 2024
Umsóknarfrestur10. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Dalshraun 3, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar