Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.
Borgarnes: Sumarstörf
Vilt þú vera með okkur í liði í sumar?
Hefur þú ríka þjónustulund, ert góður söluráðgjafi og hefur gaman af mannlegum samskiptum? Þá gætum við verið með starfið fyrir þig.
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum aðilum til þess að bætast í hóp öflugra starfsmanna Húsasmiðjunnar í Borgarnesi. Um er að ræða fjölbreytt sumarstörf bæði í verslun og timbursölu. Við leitum að aðilum sem hafa jákvætt hugarfar og metnað fyrir því að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala, afgreiðsla, og þjónusta við viðskiptavini
- Móttaka vöru, tiltekt og afgreiðsla pantana
- Önnur tilfallandi verslunarstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð, skipulög og vönduð vinnubrögð
- Stundvísi, reglusemi og snyrtimennska
- Almenn tölvukunnátta
Auglýsing stofnuð17. apríl 2024
Umsóknarfrestur1. maí 2024
Staðsetning
Egilsholt 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Afgreiðsla /ekki sumarstarf
Bæjarbakarí
Barþjónar í hlutastarf.
The Dubliner Reykjavík
Sölumaður - Sales professional
Iceland Review ehf.
Fulltrúi á Selfossi - framtíðarstarf
Eimskip
Þjónustustjóri
Heimilisþrif
Aviation security at Keflavík airport
Öryggismiðstöðin
Sumarstarf á þurr-/frystilager og sendlastörf
Emmessís ehf.
Þjónustufulltrúi í Þjónustu- og Söluver í Reykjavík
Hvammsvík Sjóböð ehf
Sölufulltrúi - Sumarstarf
Aftra
Tjaldvörður - og fleiri skemmtileg verkefni
Eyjafjarðarsveit
Söluráðgjafi glugga
Kambar Byggingavörur ehf
Myndbanda og filmu yfirfærsla / Partýleiga / Afgreiðsla
Fotomax