Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.
Söluráðgjafi í Fagmannaverslun
Við leitum að kraftmiklum aðila í starf söluráðgjafa í Fagmannaverslun Húsasmiðjunnar.
Megin hlutverk söluráðgjafa er ráðgjöf og þjónusta til fagaðila og einstaklinga í góðri samvinnu við annað starfsfólk í fagsöluteyminu. Söluráðgjafi hefur einnig umsjón með skipulagi, áfyllingum og almennri umhirðu í versluninni.
Við leitum að drífandi einstaklingi með jákvætt hugarfar sem hefur metnað og áhuga á að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina í festinga- og verkfæradeild ásamt fatadeild.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun s.s. tækni- eða iðnmenntun eða reynsla sem nýtist í starfi er mikill kostur
- Áhugi og reynsla af sölu og þjónustu
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Gott vald á íslensku
- Almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Styrkir til heilsueflingar
- Aðgangur að orlofshúsum
- Hleðslustöðvar við starfsstöð
- Afsláttarkjör til starfsmanna í verslunum Húsasmiðjunnar, Ískrafts og Blómaval.
Auglýsing stofnuð11. apríl 2024
Umsóknarfrestur15. maí 2024
Staðsetning
Kjalarvogur 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðDynamics AXFrumkvæðiMálaraiðnMannleg samskiptiMetnaðurSölumennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
Barþjónar í hlutastarf.
The Dubliner Reykjavík
Sölumaður - Sales professional
Iceland Review ehf.
Húsasmiður í fasteignaviðhald
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Account Associate (Fixed-term / Maternity leave cover)
Wolt
Fagmanneskja í sviðsdeild
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús
Verkstjóri í viðhaldi og nýbyggingum
K16 ehf
Þjónustufulltrúi í Þjónustu- og Söluver í Reykjavík
Hvammsvík Sjóböð ehf
Sölufulltrúi - Sumarstarf
Aftra
Söluráðgjafi glugga
Kambar Byggingavörur ehf
Sölufulltrúi - sumarstarf
Freyja
Sölufulltrúi/Almennt starf – Sumarstarf og Fullt starf
Gullskógar
Sölufulltrúi í verslun á Akureyri
Þór hf