Heimilistæki / Tölvulistinn

Heimilistæki / Tölvulistinn

Meiri gæði - aukin þekking - betri þjónusta
Heimilistæki / Tölvulistinn
Um vinnustaðinn
Heimilistæki og Tölvulistinn eru keðja heimilistækja- og tölvuverslana sem reknar eru í sameiningu á landsbyggðinni. Verslanir Heimilistækja og Tölvulistans á landsbyggðinni eru á Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjanesbæ.

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2019

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn
Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík
Jafnlaunastefna
Heimilistæki og Tölvulistinn leggja áherslu á að greiða jöfn laun og veita sömu kjör fyrir sambærilega frammistöðu, óháð kyni, kynþætti eða öðrum órökstuddum viðmiðum.
Mannauðsstefna
Við getum stolt sagt frá því að meðalstarfsaldur hjá fyrirtækinu er 12 ár, út frá því má áætla að starfsánægja hjá okkar starfsfólki sé þónokkur. Stefna Heimilistækja og Tölvulistans er að þar starfi metnaðarfullt og þekkingarsækið starfsfólk sem skilar sér í jákvæðu og vinalegu starfsumhverfi.

51-200

starfsmenn

Skemmtun

Hluti af því að skapa jákvætt og vinalegt starfsumhverfi er að hrista reglulega saman starfshópinn og bjóða upp á reglulega skemmtun. Árlegir viðburðir eru til dæmis glæsileg árshátíð, jólahlaðborð, keilumót, golfmót og fleiri smærri viðburðir á vegum starfsmannafélagsins.

Mannauðsstefna
Við getum stolt sagt frá því að meðalstarfsaldur hjá fyrirtækinu er 12 ár, út frá því má áætla að starfsánægja hjá okkar starfsfólki sé þónokkur. Stefna Heimilistækja og Tölvulistans er að þar starfi metnaðarfullt og þekkingarsækið starfsfólk sem skilar sér í jákvæðu og vinalegu starfsumhverfi.
Þjónustustefna
Við leggjum mikið upp úr því að veita góða þjónustu. Því teljum við ekki síður mikilvægt fyrir góðan sölufulltrúa að hafa ríka þjónustulund. Við bjóðum reglulega upp á vörufræðslufundi fyrir starfsfólk svo það geti aukið sjálfsöryggi og þekkingu sína í starfi.