Tölvulistinn

Tölvulistinn

Vinnustaðurinn
Tölvulistinn
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Tölvulistinn er keðja tölvuverslana sem staðsettar eru um allt land. Tölvulistinn var stofnaður árið 1992 og eru verslanir Tölvulistans staðsettar í Reykjavík, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjanesbæ. Verslunin í Reykjavík hefur verið staðsett á Suðurlandsbraut 26 frá árinu 2007 og hefur að geyma mikið úrval af gæða tölvuvörum ásamt fyrirtækjaþjónustu og skrifstofum Tölvulistans. Tölvulistinn flytur inn og þjónustar tölvuvörur fyrir marga af þekktustu tölvuframleiðendum heims eins og Toshiba, Asus, Acer, Epson, Philips, AOC, CoolerMaster, MSI, Razer, Logitech, Corsair, Western Digital, Intel, AMD, Seagate, Manhattan, Rapoo, Targus, SanDisk, Zyxel, Planet, Fortron, Microsoft, Qnap og Supermicro.

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2019

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn

Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2018

Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn
Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík
Jafnlaunastefna
Tölvulistinn leggur áherslu á að greiða jöfn laun og veita sömu kjör fyrir sambærilega frammistöðu, óháð kyni, kynþætti eða öðrum órökstuddum viðmiðum.
Þjónustustefna
Við leggjum mikið upp úr því að veita góða þjónustu. Því teljum við ekki síður mikilvægt fyrir góðan sölufulltrúa að hafa ríka þjónustulund. Við bjóðum reglulega upp á vörufræðslufundi fyrir starfsfólk svo það geti aukið sjálfsöryggi og þekkingu sína í starfi.

51-200

starfsmenn

Skemmtun

Hluti af því að skapa jákvætt og vinalegt starfsumhverfi er að hrista reglulega saman starfshópinn og bjóða upp á reglulega skemmtun. Árlegir viðburðir eru til dæmis glæsileg árshátíð, jólahlaðborð, keilumót, golfmót og fleiri smærri viðburðir á vegum starfsmannafélagsins.

Nýjustu störfin

Engin störf í boði

Mannauðsstefna
Við getum stolt sagt frá því að meðalstarfsaldur í Tölvulistanum er 12 ár, út frá því má áætla að starfsánægja hjá okkar starfsfólki sé þónokkur. Stefna Tölvulistans er að þar starfi metnaðarfullt og þekkingarsækið starfsfólk sem skilar sér í jákvæðu og vinalegu starfsumhverfi.