Eignabyggð ehf.
Eignabyggð ehf.

Yfirmaður jarðvinnudeildar óskast til Eignabyggðar

Eignabyggð leitar að öflugum og reynslumiklum einstaklingi til að leiða jarðvinnudeild félagsins. Viðkomandi ber ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar, skipulagningu verkefna, stjórnun starfsmanna og eftirfylgni með gæðum, kostnaði og tímaáætlunum.

Leitað er að lausnamiðuðum leiðtoga sem hefur góða þekkingu á jarðvinnu og framkvæmdum og getur haldið vel utan um fjölbreytt verkefni. Um er að ræða ábyrgðarmikið starf hjá öflugu og vaxandi fyrirtæki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og skipulagning jarðvinnudeildar

  • Verkstjórn og mannaforráð

  • Skipulagning mannafla, tækja og aðfanga

  • Gerð og eftirfylgni verk- og tímaáætlana

  • Kostnaðareftirlit og eftirfylgni með framvindu verkefna

  • Samskipti við verkkaupa, undirverktaka, birgja og aðra samstarfsaðila

  • Eftirlit með gæðum, öryggi og frágangi

  • Ábyrgð á góðri nýtingu og viðhaldi véla og tækja

  • Tilboðsgerð, magntökur og undirbúningur framkvæmda eftir þörfum

  • Þátttaka í áframhaldandi uppbyggingu og þróun deildarinnar

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af jarðvinnu, framkvæmdum eða sambærilegum verkefnum

  • Reynsla af verkstjórn og mannaforráðum

  • Góð þekking á vinnuvélum, tækjum og framkvæmdum

  • Hæfni til að skipuleggja og stýra mörgum verkefnum samtímis

  • Góð samskipta- og leiðtogahæfni

  • Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð hugsun

  • Góð íslenskukunnátta

  • Almenn tölvukunnátta

  • Ökuréttindi

  • Menntun á sviði byggingariðnaðar, tæknifræði eða verkfræði er kostur en ekki skilyrði

  • Vinnuvélaréttindi og reynsla af tilboðsgerð eru kostur

Fríðindi í starfi
  • Ábyrgðar- og áhrifamikið starf

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni

  • Góð vinnuaðstaða og öflugur tækjakostur

  • Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og þróun jarðvinnudeildarinnar

  • Samkeppnishæf laun

  • Öflugt og gott starfsumhverfi

Auglýsing birt13. júlí 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Álfabakki 12, 109 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar