
Kóði
Hugbúnaðarfyrirtækið Kóði ehf. er sérhæft fyrirtæki á sviði verðbréfaviðskipta og lausna fyrir fjármálaheiminn. Meðal viðskiptavina Kóða eru öll helstu fjármálafyrirtæki Íslands.
Kóði var stofnað í janúar 2009. Hjá fyrirtækinu starfa tæplega 30 starfsmenn.
Síðustu ár hefur Kóði verið áberandi fyrirtæki í nýsköpun á sviði fjármálalausna með lausnir eins og www.keldan.is, Keldan app, hluthafaskra.is, Kodiak fjármálakerfi, www.livemarketdata.com, www.ipo.is, o.fl.

Vörustjóri hjá Kóða og Keldunni
Hefur þú áhuga á fjármálamörkuðum og vilt móta vörur sem fjármálafyrirtæki, fjárfestar og stofnanir nota á hverjum degi?
Kóði leitar að öflugum vörustjóra. Hann ber ábyrgð á þróun og framgangi tiltekinna vara í vöruframboði Kóða og Keldunnar. Vörustjórinn vinnur náið með forriturum, viðskiptavinum og stjórnendum. Hann heldur utan um forgangsröðun og samskipti, frá hugmynd að útgáfu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á forgangsröðun og framgangi varanna
- Skipulag og stjórnun þróunarvinnu í sprettum í samstarfi við forritara
- Samskipti við viðskiptavini, greining á þörfum þeirra og eftirfylgni
- Skilgreining á nýjum eiginleikum og lausnum
- Áætlanagerð og eftirfylgni með verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði tækni, verkfræði, viðskipta eða fjármála
- Brennandi áhugi á fjármálum og fjármálamörkuðum
- Reynsla af vinnu í sprettum (Scrum/Agile) kostur
- Reynsla af samskiptum við kröfuharða viðskiptavini
- Frumkvæði, skipulagshæfni og góð samskiptafærni
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, töluðu og rituðu máli
- Áhugi á að nýta gervigreind í daglegu starfi
Auglýsing birt16. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturFrumkvæðiGagnagreiningGervigreindJiraKerfishönnunMannleg samskiptiSCRUMSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinnaVerkefnastjórnunViðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


