
Viltu vinna þar sem tónlist, gögn og réttindi mætast?
STEF leitar að öflugum einstaklingi sem vill taka þátt í að tryggja að verðmæti tónlistarinnar skili sér til þeirra sem skapa hana. Starfið er fjölbreytt og spennandi og gefur þér einstaka innsýn í heim tónlistar og höfundaréttar, þar sem þú vinnur með gögn, réttindi og þjónustu í bæði íslensku og alþjóðlegu umhverfi.
Þú verður hluti af samhentu teymi hjá STEF þar sem nákvæmni, góð þjónusta og lausnamiðuð hugsun skipta máli, og þar sem verkefnin tengjast tónlist sem við heyrum og njótum á hverjum degi.
Um er að ræða 50% starf.
Ábyrgð og helstu verkefni:
- Vinnsla og umsýsla gagna sem tengjast höfundaréttartekjum, réttindum og úthlutunum.
- Skráning og vinnsla upplýsinga um notkun tónlistar í útvarpi og sjónvarpi.
- Samkeyrsla og yfirferð gagna við gagnagrunn STEFs og alþjóðleg réttindakerfi.
- Skráning og umsýsla upplýsinga um tónverk, höfunda og aðra rétthafa.
- Þjónusta og ráðgjöf við meðlimi STEFs vegna réttinda, skráninga og úthlutana.
- Svörun fyrirspurna og eftirfylgni mála sem tengjast tónlistarnotkun og höfundarétti.
- Samskipti og upplýsingamiðlun við innlenda og erlenda samstarfs- og hagsmunaaðila.
- Þátttaka í almennri umsýslu og þróun verklags á sviði réttinda- og gagnavinnslu.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af gagnavinnslu er kostur.
- Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.
- Góð greiningarhæfni og hæfileiki til að vinna með mikið magn upplýsinga.
- Nákvæm, skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvæðni.
- Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að fylgja málum vel eftir.
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
- Áhugi á tónlist, höfundarétti og starfsumhverfi STEF er kostur.
STEF eru höfundaréttarsamtök sem hafa frá upphafi haft það að markmiði að gæta hagsmuna innlendra og erlendra tónskálda, textahöfunda og annarra tengdra rétthafa á sviði höfundaréttar.
Hlutverk STEFs er að varðveita og efla höfundarétt á sviði tónlistar. Fyrir hönd rétthafa innheimtir STEF gjöld fyrir notkun tónlistar sem flutt er opinberlega. Viðskiptavinir STEFs eru t.d. útvarps- og sjónvarpsstöðvar, tónleikahaldarar, verslanir, veitingastaðir, hárgreiðslustofur og heilsuræktarstöðvar, sem og tónlistarveitur eins og Spotify, YouTube o.fl.
Í STEF er skráðir um 9.000 rétthafar og geymir gagnagrunnur STEFs um 130.000 verk.
Umsóknarfrestur er til og með 13. september n.k.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Bjarki Pétursson ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska










