

Viltu vinna sem aðstoðarkona fyrir ungmenni?
Hress og skemmtileg stúlka á unglingsaldri óskar eftir ábyrgri og umhyggjusamri aðstoðarkonu til að aðstoða sig við flestar athafnir daglegs lífs og þátttöku í frístundum. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf og fer þjónustan að mestu leyti fram á heimili stúlkunnar sem staðsett er í Reykjavík.
Vinnutími
Um er að ræða 4-6 tíma vaktir í dagvinnu, tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Vinnutími og fjöldi vakta er samkvæmt nánara samkomulagi.
Hæfniskröfur
Reynsla af starfi með fötluðum börnum og ungmennum
Menntun sem nýtist í starfi, til dæmis í sálfræði, þroskaþjálfun, félagsliða, menntavísindum eða heilbrigðisvísindum
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, þolinmæði, sveigjanleiki og stundvísi
Gilt ökuskírteini og hreint sakavottorð
Hafa bíl til umráða
Reykleysi
Góð íslenskukunnátta
Aðeins 20 ára og eldri koma til greina
Annað:
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fljótlega
Starfið hentar vel með námi eða annarri vinnu
Umsóknir skulu innihalda ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur
Íslenska










