

Viltu veita félagslega ráðgjöf og bæta hag einstaklinga og fjölskyldna?
Velferðarsvið Kópavogsbæjar leitar að öflugum og metnaðarfullum félagsráðgjafa til liðs við skrifstofu ráðgjafar. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér félagslega ráðgjöf, húsnæðismál og samstarf við einstaklinga, fjölskyldur og fagaðila.
Á velferðarsviði Kópavogsbæjar er veitt fjölbreytt velferðarþjónusta. Hlutverk sviðsins er að veita metnaðarfulla þjónustu sem hefur það að markmiði að stuðla að bættum lífsgæðum íbúa.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum innan velferðarþjónustu og vill taka virkan þátt í faglegri þróun þjónustunnar.
-
Félagsleg ráðgjöf við einstaklinga og fjölskyldur.
-
Ráðgjöf, stuðningur og eftirfylgd á sviði húsnæðismála.
-
Vinnsla umsókna um félagslegt leiguhúsnæði og faglegt mat á aðstæðum umsækjenda.
-
Undirbúningur mála og þátttaka í úthlutunarferli félagslegs húsnæðis.
-
Upplýsingagjöf og leiðbeiningar um félagsleg réttindi og þjónustu.
-
Mat á þjónustuþörf og gerð áætlana eftir því sem við á.
-
Þverfaglegt samstarf við stofnanir og fagaðila innan og utan Kópavogsbæjar.
-
Þátttaka í þróun og umbótum á þjónustu velferðarsviðs.
-
Önnur verkefni sem falla undir starfssvið skrifstofu ráðgjafar.
-
Starfsréttindi í félagsráðgjöf er skilyrði.
-
Þekking og reynsla af starfi innan velferðarþjónustu sveitarfélaga er skilyrði.
-
Þekking eða reynsla af húsnæðismálum er kostur.
-
Þekking á lögum, reglum og réttindum á sviði velferðarþjónustu er æskileg.
-
Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum, samstarfi og teymisvinnu.
-
Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Jákvæðni, áreiðanleiki og traust vinnubrögð.
-
Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
-
Frír aðgangur að sundlaugum Kópavogsbæjar.
-
Mötuneyti á staðnum.
-
Styttri vinnuvika.
-
Íþróttastyrkur.
Íslenska


