

Viltu þú taka þátt í að tryggja flugöryggi?
Avians leitar að öflugum einstaklingi til að sinna stöðu sérfræðings í öryggismálum flugstjórnarmiðstöðvar og vill taka þátt í að byggja upp og viðhalda öryggismenningu sem tryggir örugga þjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu.
Um er að ræða starf sem unnið er í líflegu og spennandi vinnuumhverfi á skrifstofu flugstjórnarmiðstöðvarinnar þar sem hafa þarf samskipti við ýmsa aðila og leiða saman mismunandi sjónarmið og skoðanir.
Hjá okkur starfar þú í lifandi og alþjóðlegu umhverfi, þar sem öryggi, samvinna og tækni eru lykilatriði. Við leggjum áherslu á fagmennsku, frumkvæði og sjálfstæði og sömuleiðis á sterka liðsheild og góð samskipti.
Hjá Avians verður þú hluti af öflugu teymi þar sem fjölbreytt og krefjandi verkefni kalla á skipulag, ábyrgð og hæfni til að vinna undir álagi.
- Skipulag og umsjón öryggismata vegna öryggistengdra breytinga kerfum og verklagi sem notað er við veitingu flugleiðsöguþjónustu.
- Eftirlit með að öryggiskröfur vegna breytinga séu uppfylltar.
- Þáttaka í rýni á öryggis- og gæðaframmistöðu deildarinnar.
- Samskipti við hagaðila og upplýsingamiðlun um öryggis- og gæðaframmistöðu deildarinnar.
- Hefur viðeigandi háskólamenntun eða sérhæfða menntun tengda öryggismálum og eða flugi.
- Hefur þekkingu og reynslu á öryggis- og gæðastjórnun.
- Reynsla af undirbúningi og stýringu öryggismata æskileg.
- Er úrræðagóð/ur og sjálfstæð/ur í vinnubrögðum.
- Á auðvelt með að stýra fundum, vinna í hópi og hefur góða samskiptahæfileika.
- Hefur góða kunnáttu á bæði íslensku og ensku, í ræðu og riti.
Enska
Íslenska



