

Viltu þjálfa börn í sundi?
Sunddeild Ármanns er metnaðarfullt sundfélag sem óskar eftir umsóknum frá áhugasömum sundþjálfurum sem vilja starfa með öflugu þjálfarateymi félagsins.
Ef þú hefur áhuga á sundþjálfun, nýtur þess að vinna með börnum og vilt taka þátt í skemmtilegu og uppbyggilegu starfi, viljum við gjarnan heyra frá þér.
Ármann býður upp á sundskóla og æfingahópa í Laugardalslaug, Árbæjarlaug og Grafarvogslaug fyrir börn frá 3 ára aldri. Til skoðunar er að bæta við sundskóla og/eða yngri æfingahópum í Dalslaug næsta haust, ef réttur þjálfari fæst til starfa.
Við leitum að þjálfurum sem hafa áhuga á að starfa með börnum á breiðu aldursbili, allt frá 3 ára aldri og upp úr. Verkefnin geta bæði falist í kennslu í sundskóla og þjálfun yngri æfingahópa, eftir reynslu, áhuga og þörfum félagsins.
Starfið felur í sér
- Sundþjálfun eða aðstoð við sundþjálfun barna.
- Þátttöku í þjálfarateymi Sunddeildar Ármanns undir leiðsögn yfirþjálfara.
- Vinnutíma síðdegis á virkum dögum, 2–4 daga í viku.
- Þátttöku á einstaka sundmótum um helgar, eftir því sem við á.
Hæfniskröfur
- Áhugi og hæfni til að starfa með börnum.
- Góð samskiptahæfni.
- Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri.
- Hreint sakavottorð.
Kostir
- Reynsla af þjálfun barna.
- Reynsla af sundþjálfun.
- Góð íslenskukunnátta.
- Áhugi á að taka þátt í uppbyggilegu félagsstarfi.
Við hvetjum sérstaklega frístundaleiðbeinendur, kennara, leikskólakennara, íþróttakennara og aðra sem hafa reynslu af starfi með börnum og áhuga á skemmtilegu aukastarfi til að sækja um.
Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn með upplýsingum um menntun, fyrri störf.
Komi upp spruningar er hægt að hafa samband við [email protected].
Íslenska