Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Viltu taka iðnnámið þitt hjá Orku náttúrunnar?

Við leitum að jákvæðum og námsfúsum iðnnemum sem hafa lokið 4-5 önnum í rafvirkjun eða vélvirkjun og vilja öðlast fjölbreytta verklega reynslu undir leiðsögn reynds fagfólks.

Hjá Orku náttúrunnar starfar öflugur hópur fagfólks við rekstur og viðhald virkjana og tæknilegra kerfa.

Við eigum og rekum jarðhitavirkjanirnar á Hellisheiði og Nesjavöllum og vatnsaflsvirkjun í Andakíl í Borgarfirði.

Iðnnemar eru mikilvægur hluti af því hvernig við byggjum upp fagþekkingu til framtíðar.

Hjá ON færðu tækifæri til að öðlast fjölbreytta reynslu í þínu fagi, vinna með reyndu fagfólki sem miðlar af þekkingu sinni, læra fagleg og örugg vinnubrögð, byggja upp sjálfstæði og faglega ábyrgð og undirbúa þig vel fyrir sveinspróf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þau verkefni sem iðnnemar ON sinna geta m.a. tengst:

  • Rafbúnaði, mótorum, stýringum og skynjurum
  • Vélum, dælum og öðrum vélbúnaði
  • Viðhaldi, bilanagreiningu og viðgerðum
  • Öðrum búnaði og kerfum sem þarf til að halda virkjunum okkar gangandi.

Öryggi er órjúfanlegur hluti af náminu.

Þú lærir að meta aðstæður og áhættu og vinna samkvæmt þeim öryggis-, umhverfis- og gæðakröfum sem gilda á virkjanasvæði ON.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að iðnnemum sem:

  • Hafa lokið 4-5 önnum í vélvirkjun eða rafvirkjun
  • Hafa áhuga á tækni, búnaði og því hvernig hlutir virka
  • Eru námsfús og vilja takast á við fjölbreytt verkefni
  • Leggja metnað í örugg og góð vinnubrögð
  • Sýna frumkvæði og taka ábyrgð á eigin námi

Athugaðu að með umsókn þinni skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram koma upplýsingar um iðngrein, stöðu þína í náminu, hvers konar reynslu þú sækist eftir, áætlaðan tímaramma starfsnáms og af hverju þú telur Orku náttúrunnar vera heppilegan vinnustað fyrir þig.

Auglýsing birt18. nóvember 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Nesjavallavirkjun 170925, 801 Selfoss
Hellisheiðavirkjun
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar