
Stoð
Stoð er rótgróið þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði, stofnað 1982. Markmið Stoðar er að bæta lífsgæði með því að bjóða upp á heildarlausnir fyrir einstaklinga með fötlun, áverka og sjúkdóma og þá sem vilja fyrirbyggja heilsufarsvandamál. Auk þess að þjónusta og veita lausnir fyrir heilbrigðisstofnanir. Innan Stoðar starfar samhentur hópur fagfólks á heilbrigðissviði sem vinnur í sameiningu að því að finna bestu lausnirnar fyrir viðskiptavini fyrirtækisins.
Viltu bæta lífsgæði fólks?
STOÐ leitar að þjónustulunduðum söluráðgjafa með áhuga á heilbrigði og velferð.
Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem er fljótur að læra, hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum og brennur fyrir að veita framúrskarandi þjónustu. Starfið felur í sér söluráðgjöf í verslun, úrlausn erinda í gegnum síma og vef, auk annarra verkefna sem styðja við okkar mikilvæga hlutverk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka viðskiptavina, sala og fagleg ráðgjöf um vörur og heilbrigðistengdar lausnir
- Upplýsingagjöf um vörur, þjónustu og lausnir Stoðar
- Úrlausn erinda í gegnum síma og vef Stoðar
- Samvinna við starfsfólk annarra deilda til að tryggja heildrænar og skilvirkar lausnir
- Ýmis tilfallandi verkefni sem styrkja þjónustu og bæta vinnustaðinn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Einlægur áhugi á að styðja fólk og bæta lífsgæði
- Framúrskarandi samskiptahæfni og sterk þjónustulund
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og jákvætt lífsviðhorf
- Hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu hratt og vel
- Góðir skipulagshæfileikar og faglegur metnaður
- Góð almenn tölvukunnátta
- Menntun sem nýtist í starfi
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur22. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFrumkvæðiMannleg samskiptiMetnaðurÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi í langtímaleigudeild í Reykjavík
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Sumarstarf í móttöku / Summer Reception Agent – Icerental4x4
Icerental4x4

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf

Sjúkraliði
Klíníkin Ármúla ehf.

Sumarstörf 2026
Toyota

Ævintýragjarnt aðstoðarfólk óskast í hlutastarf
NPA miðstöðin

Verkstæðismóttaka
Toyota

Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á smitsjúkdómadeild
Landspítali

Sumarstarf í þjónustuveri HMS á Sauðárkróki
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Sérfræðingur í þjónustu og innleiðingum
Noona Iceland

Vegglistafólk óskast í Molann miðstöð unga fólksins
Sumarstörf - Kópavogsbær

Vilt þú starfa með okkur í sumar?
VÍS