Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Vilt þú vinna að framtíðinni? Sérfræðingur í gervigreind

Krefjandi og spennandi starf fyrir metnaðarfullan einstakling sem vill hafa áhrif á þróun málefnasviðs gervigreindar í samræmi við þarfir samfélagsins.

Um er að ræða fullt starf sérfræðings á skrifstofu nýsköpunar, rannsókna og stafrænna mála. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum. Ráðuneytið áskilur sér rétt til að ráða fleiri en einn starfsmann á grundvelli þessarar auglýsingar.

Í menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneyti starfa um 50 starfsmenn með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Ráðuneytið er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem lögð er áhersla á samvinnu og góðan starfsanda í samræmi við mannauðs- og viðverustefnu Stjórnarráðsins.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Valgeirsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu nýsköpunar, rannsókna og stafrænna mála, [email protected]

Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

Athygli er vakin á því að samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 er ráðuneytinu skylt að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda um starf þegar umsóknarfrestur er liðinn verði eftir því leitað.

Ráðuneytið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.

Ráðuneytið er jákvætt fyrir störfum óháð staðsetningu.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Framkvæmd og eftirfylgni aðgerðaráætlunar í gervigreind
• Þátttaka í stefnumótun
• Tæknileg ráðgjöf og samskipti við opinbera aðila,
fyrirtæki og félagasamtök
• Þátttaka í teymisvinnu innan ráðuneytisins

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Þekking á gervigreindartækni og hagnýtingu hennar

  • Þekking á stafrænum innviðum sem styðja við reiknigetu og gagnaúrvinnslu

  • Færni í að greina samfélagslegar áskoranir og tækifæri sem tengjast nýtingu gervigreindar

  • Skipulagshæfni, nákvæmni og geta til að forgangsraða verkefnum

  • Frumkvæði, ábyrgð og sveigjanleiki eru mikilvæg

  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að miðla tæknilega flóknum upplýsingum til fjölbreytts hóps viðtakenda.

  • Þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu og verkefnastjórnun er kostur

Auglýsing birt27. júní 2025
Umsóknarfrestur11. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar