Suðurnesjabær
Suðurnesjabær

Vilt þú móta framtíðina með okkur?

Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar óskar eftir að ráða skólafélagsráðgjafa í fullt starf við grunnskóla Suðurnesjabæjar og sveitarfélagsins Voga. Grunnskólar sveitarfélaganna eru þrír, Gerðaskóli, Sandgerðisskóli og Stóru- Vogaskóli. Um er að ræða nýja stöðu vegna innleiðingar laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Viðkomandi þarf að hafa menntun og starfsréttindi félagsráðgjafa ásamt þekkingu á úrræðum bæði ríkis og sveitarfélaga.

Viðkomandi verður starfsmaður Suðurnesjabæjar sem er næst stærsta sveitarfélagið á Suðurnesjum með um 3.900 íbúa og 280 starfsmenn.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf í félagsráðgjöf og starfsréttindi félagsráðgjafa á Íslandi
Þekking og reynsla af viðtalstækni er æskileg og reynsla af því að ræða við börn er skilyrði
Þekking og vinnsla með greiningartæki er kostur (s.s. Estermat)
Geta til að nýta viðurkennda vísindalega þekkingu við úrlausn mála
Áhugi á að vinna að velferð barna og ungmenna
Krafa er um lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleika
Hæfni til að tjá sig í ræðu og koma frá sér vönduðum skriflegum texta
Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor, að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Helstu verkefni og ábyrgð
Nemendaráðgjöf m.a. vegna félaglegs, námslegs og/eða tilfinningalegs vanda
Foreldraráðgjöf vegna nemenda
Ráðgjöf og handleiðsla við starfsmenn skóla vegna nemenda
Samþætt þjónstua í þágu farsældar barna, tengiliður skóla
Sjálfstyrkinganámskeið fyrir minni og stærri hópa
Forvarnarvinna í samráði við skólastjóra og þátttaka í mótun forvarnaráætlana
Samvinna við aðila innan skóla og utan sem tengdir eru málefnum einstakra nemenda og/eða nemendahópa
Þátttaka í mótun og þróun úrræða fyrir nemendur
Þáttaka í viðbragðsteymi skólanna sem virkjað er þegar alvarleg mál koma upp
Fundarseta í nemendaverndarráðum skólanna
Auglýsing birt3. janúar 2023
Umsóknarfrestur20. janúar 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sunnubraut 4, 250 Garður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FélagsráðgjafiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar