

Viðskiptafræðingur í Neskaupstað
Deloitte í Neskaupstað leitar að öflugum einstaklingi með viðskiptafræðimenntun sem langar að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, getur unnið sjálfstætt, er drífandi og vill hafa áhrif. Viðkomandi mun starfa í samheldnu teymi undir handleiðslu löggiltra endurskoðenda og öðlast þannig dýrmæta reynslu meðal annars á sviði endurskoðunar og reikningsskila.
Um teymið
Teymið samanstendur af starfsfólki á ólíkum aldri og með alls konar áhugamál. Teymið vinnur náið saman og styður hvert annað til að þroskast og þróast í starfi. Svo höfum við auðvitað gaman af því að fagna saman stórum sem smáum áföngum.
Í starfi þínu hjá Deloitte gæti hefðbundinn vinnudagur litið svona út:
- Þú vinnur sem hluti af teymi metnaðarfullra einstaklinga
- Þú vinnur að fjölbreyttum verkefnum
- Þú nýtir þér námskeið á vegum Deloitte og samstarfsaðila til að auka færni þína og þekkingu
- Þú vinnur undir handleiðslu reyndra sérfræðinga
· Gerð ársreikninga
· Gerð skattframtala
· Almenn fjármálaráðgjöf.
· Þú ert að ljúka eða hefur lokið B.Sc. gráðu sem tengist viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum
· Þú hefur metnað og nýtur þess að læra
· Þú hefur gaman af því að takast á við ný og krefjandi verkefni
· Þú býrð yfir greiningarhæfni og góðri þekkingu á Excel
· M.Acc gráða er kostur
· Regluleg frammistöðu samtöl
· Samstarfsfélaga sem kemur þér inn í starfið
· Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
· Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
· Aðgang að alþjóðlegu efni Deloitte
Íslenska
Enska










