
Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyinga sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Símans eru skapandi, fagleg og árangursdrifin.

Við leitum að sölustjóra á einstaklingssviði
Síminn leitar að árangursmiðuðum og drífandi sölustjóra til að leiða söluaðgerðir og árangur á einstaklingssviði Símans.
Sölustjóri ber ábyrgð á gerð og framkvæmd söluáætlana sem og að leiða söluaðgerðir á einstaklingsmarkaði. Viðkomandi vinnur náið með forstöðumanni sölu og þjónustuupplifunar og er í lykilhlutverki til að tryggja hámarksárangur söluteyma innan Símans.
Ef þú brennur fyrir sölu og átt auðvelt með að sjá tækifæri og lausnir þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gerð og eftirfylgni með söluáætlunum fyrir sölueiningar Símans á einstaklingsmarkaði
- Leiða söluaðgerðir, allt frá hugmyndavinnu til útfærslu
- Finna og greina ný sölutækifæri
- Mælingar og greiningar á árangri söluaðgerða
- Samstarf við stjórnendur sölu og þjónustu um innleiðingu söluverkferla, skýrslugerðar og fleira
- Samstarf við markaðsdeild og vöruþróunarteymi Símans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla og færni í sölu og söluaðgerðum er skilyrði
- Reynsla af stýringu og mótun söluaðgerða er kostur
- Frumkvæði og lausnarmiðuð hugsun
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Skilvirk og skipulögð vinnubrögð, yfirsýn og sjálfstæði
- Reynsla og áhugi á íslenskum fjarskiptamarkaði er kostur
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Auglýsing birt15. júní 2025
Umsóknarfrestur24. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Forstöðumaður sölu og þjónustu
Dineout ehf.

Verkefna- og viðburðastjóri menningarmála í Kópavogi
MEKÓ

Rekstrarstjóri Brons Keflavík
Brons

FERÐASKRIFSTOFA - Utanlandsferðir
Ferðaland

Viðskiptastjóri (Account Manager)
Snæland Grímsson ehf

Ert þú söludrifinn einstaklingur?
Billboard og Buzz

Verkefnastjóri
ÖBÍ

Söluráðgjafi
Funi ehf

Grafískur hönnuður
Íslandshótel

Sölustjóri
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.