

Við leitum að Prentara
Við leitum að metnaðarfullum og nákvæmum prentara til að sinna daglegri framleiðslu á stafrænum prentverkefnum. Starfið felur í sér rekstur og eftirlit með stórformatprenturum, undirbúning verkefna, gæðaeftirlit og samvinnu við aðra starfsmenn framleiðslunnar.
Fyrirtækið er framsækið, býður uppá framúrskarandi vinnu- og starfmannaaðstöðu.
Helstu verkefni
Forvinnsla prentverka (prepress)
● Rekstur og umsjón með stórformatprenturum.
● Undirbúningur prentskráa í samræmi við framleiðsluferla.
● Hleðsla og meðhöndlun prentefna (filmur, dúkar, pappír, plötuefni o.fl.).
● Litastýring og regluleg gæðaskoðun á prentun.
● Eftirlit með daglegu viðhaldi og hreinsun prentvéla.
● Skipulagning verkefna í samræmi við afhendingarfresti.
● Samvinna við hönnuði, forvinnslu, filmudeild og verkstæði.
● Skráning efnisnotkunar og framleiðsluupplýsinga.
● Að tryggja að vinnubrögð uppfylli öryggis- og gæðastaðla fyrirtækisins.
-
Reynsla af stórformatprentun er kostur.
-
Þekking á RIP-hugbúnaði (t.d. ONYX, SAi Flexi eða sambærilegu) er kostur.
-
Almenn tölvukunnátta.
-
Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
-
Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi.
-
Jákvætt viðhorf og vilji til að læra nýja tækni.
Enska
Pólska
Íslenska