Rangárþing ytra
Rangárþing ytra
Rangárþing ytra

Verkstjóri og flokkstjórar vinnuskóla

Auglýst er eftir verkstjóra og flokkstjórum vinnuskóla hjá Rangárþingi ytra í sumar.

Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu.

Vinna verkstjóra:

Verkstjóri samræmir og hefur yfirumsjón með starfi vinnuskólans. Verkstjóri verður að hafa náð 20 ára aldri, treysta sér til að leiða starf vinnuskólans með góðu fordæmi og vinnusemi og vera með bílpróf.

Helstu verkefni:

  • Að halda utan um og skipuleggja verkefni vinnuskólans.
  • Samræma vinnu flokkstjóra og er tengiliður við foreldra.
  • Ber ábyrgð á tímaskráningum til launafulltrúa ásamt öðru sem snýr að rekstri vinnuskólans.

Vinna flokkstjóra:

Flokkstjórar hafa umsjón með unglingum á aldrinum 13–16 ára við fjölbreytt umhverfistengd verkefni.

  • Flokkstjórar þurfa að sýna gott fordæmi hvað varðar stundvísi og vinnusemi.
  • Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri.
  • Bílpróf er skilyrði.

Hægt er að sækja um ofangreind störf með því að smella hér.

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2024.

Um er að ræða skemmtilega sumarvinnu með góðu og öflugu fólki.

Frekari upplýsingar veitir Hjalti Tómasson á [email protected] eða í síma 857 0008.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skipulag verkefna og umsjón ungmenna.

Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla af garðyrkjustörfum og vinna með ungmennum kostur.

Auglýsing birt26. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eyjasandur 9, 850 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar