Klasi
Klasi
Klasi

Verkstjóri - Klasi

Klasi leitar að öflugum og lausnamiðuðum verkstjóra til framtíðarstarfa við nýframkvæmdir félagsins. Viðkomandi mun stýra daglegum verkefnum á framkvæmdasvæðum og taka virkan þátt í fjölbreyttum uppbyggingarverkefnum Klasa. Starfið felur í sér náið samstarf við verktaka og aðra aðila sem koma að framkvæmdum, með áherslu á framvindu, gæði og öryggi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg verkstjórn, skipulagning og eftirlit á framkvæmdasvæðum
  • Umsjón og samskipti við verktaka á vegum Klasa
  • Eftirfylgni með tímaáætlunum, gæðum og öryggismálum
  • Samhæfing verkefna og úrlausn mála á verkstað
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af framkvæmdum, verkstjórn eða sambærilegum verkefnum
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. byggingatæknifræði, meistararéttindi eða viðeigandi iðnmenntun
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Hæfni til að leiða fólk og fylgja verkefnum eftir
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku
  • Bílpróf (B-réttindi)
Auglýsing birt26. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. desember 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar