

Verkstjóri á þjónustuverkstæði - Hagvagna þjónustu
Hagvagnar þjónusta leitar að metnaðarfullum verkstjóra til að stýra öflugu teymi er starfar á þjónustuverkstæði í Hafnarfirði. Verkstjóri sinnir tilfallandi verkefnum og stjórnun starfsmanna.
Hagvagnar þjónusta er þjónustuaðili Hópbíla og Hagvagna. Hjá félögunum starfar breiður hópur starfsfólks sem hefur yfir gríðarlegri reynslu og þekkingu að ráða.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Dagleg verkstjórn til að hámarka flæði á verkstæði
• Móttaka og úthlutun verkefna
• Bilanagreining og önnur tilfallandi verkefni
• Samskipti við birgja og áætlanagerð
• Öryggi og velferð starfsmanna að leiðarljósi
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
• Reynsla af stjórnunarstörfum
• Þekking og reynsla á gæða-, umhverfis- og öryggisstjórnun
• Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
• Tækni- og tölvukunnátta
• Enskukunnátta
Í samræmi við jafnréttisstefnu Hagvagna þjónustu eru einstaklingar óháð kyni hvattir til að sækja um. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Um er að ræða framtíðarstarf og viðkomandi þarf að geta hafið störf í september.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnar Páll Guðmundsson, mannauðsráðgjafi, [email protected]









