Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Verkefnastjóri innkaupa

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða verkefnastjóra innkaupa og rekstrar HSU. Um er að ræða nýtt og spennandi starf fyrir skipulagðan og talnaglöggan einstakling, starfið heyrir beint undir fjármálastjóra HSU.

Verkefnastjóri innkaupa og rekstrar tryggir skilvirk og ábyrg innkaup og birgðastýringu fyrir HSU í samræmi við gildandi rammasamninga, lög og reglur. Starfsmaður sinnir daglegum innkaupum, heldur utan um afhendingar og birgðir, og tekur virkan þátt í innleiðingu Kanban kerfis.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með innkaupamálum 
  • Skipulagning og þróun innkaupamála ásamt innleiðingu á Kanban kerfi 
  • Greining, samræming innkaupa og þarfagreining 
  • Samskipti við birgja 
  • Ber ábyrgð á sóttvarnarlager  
  • Aðstoð við undirbúning fjárhagsáætlana 
  • Ráðgjöf við deildir vegna innkaupa og útboðsmála 
  • Önnur tilfallandi verkefni  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi 
  • Þekkir og vinnur eftir rammasamningi ríksins 
  • Þekking og/eða reynsla af Kanban er kostur  
  • Reynsla af samningagerð er kostur 
  • Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur  
  • Góð þekking og reynsla af Power Bi er kostur  
  • Góð íslenskukunátta er nauðsynleg 
  • Samskiptahæfni, jákvætt viðhorf, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun  
  • Rík þjónustulund, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð 
Fríðindi í starfi

Upphafsdagur starfsins er samkomulag. 

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri. 

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. 

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós. 

Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur13. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar