
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Verkefnastjóri í skipulagsmálum
Kópavogsbær leitar að öflugum og metnaðarfullum verkefnastjóra í skipulagsmálum / arkitekt til starfa á skipulagsdeild á umhverfissviði Kópavogsbæjar. Starfið heyrir undir skipulagsfulltrúa og felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði skipulagsmála, arkitektúrs og þróunar byggðar.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á vandaðri bæjarmynd, sjálfbærri byggðarþróun og faglegri úrvinnslu skipulagsmála í góðu samstarfi við íbúa, hagsmunaaðila og aðra fagaðila. Starfið felur meðal annars í sér vinnslu skipulagsgagna, greininga, umsagna og kynningarefnis auk ráðgjafar um skipulagsmál og arkitektúr.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur að afgreiðslu skipulagsmála
- Tekur þátt í gerð og þróun aðal-, deili- og hverfisskipulags
- Útbýr greiningar, uppdrætti, greinargerðir og kynningargögn
- Þróar skipulagstillögur með áherslu á gæði byggðar, aðgengi og sjálfbærni
- Vinnur faglegar greiningar á landnotkun og þróun byggðar
- Sinnir grenndarkynningum, íbúasamráði og kynningu skipulagsverkefna
- Vinnur umsagnir og afgreiðslutillögur fyrir skipulagsráð
- Tekur þátt í gerð skipulagsskilmála og skipulagsgagna
- Veitir faglega ráðgjöf um skipulagsmál og þróun byggðs umhverfis
- Sinnir öðrum verkefnum sem starfsmanni eru falin af yfirmanni og falla að starfssviði hans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf í arkitektúr eða önnur menntun sem uppfyllir skilyrði 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
- Þekking og reynsla af skipulagsferlum sveitarfélaga, stjórnsýslumeðferð skipulagsmála og gerð skipulagsgagna
- Reynsla af gerð eða yfirferð deiliskipulags, skipulagsskilmála, uppdrátta og greinargerða er æskileg
- Góð þekking og færni í AutoCAD, landupplýsingakerfum og öðrum teikni- og gagnavinnslukerfum sem nýtast í starfi
- Þekking á skjalavistunarkerfi er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð færni í mannlegum samskiptum, skipulagsfærni og þjónustulipurð
- Frumkvæði, sjálfstæði, nákvæmni og samviskusemi í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
36 klukkustunda vinnuvika.
Auglýsing birt13. ágúst 2026
Umsóknarfrestur27. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (1)
