Eimskip
Eimskip
Eimskip

Verkefnastjóri á ferla- og upplýsingatæknisviði Eimskips

Viltu leiða fjölbreytt verkefni og hafa áhrif á þróun og umbætur hjá Eimskip?

Við leitum að reyndum verkefnastjóra til að leiða verkefni á sviði upplýsingatækni, stafrænnar þróunar og umbóta þvert á starfsemi Eimskips, bæði hér á landi og erlendis. Við leitum að einstaklingi sem hefur góðan viðskiptaskilning, nær fólki saman og hefur drifkraftinn og skipulagið sem þarf til að leiða verkefni frá hugmynd að árangursríkri innleiðingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra verkefnum frá undirbúningi til innleiðingar og bera ábyrgð á umfangi, tímaáætlun, kostnaði, gæðum og áhættu.
  • Leiða þverfagleg verkefnateymi, samræma væntingar hagaðila og tryggja góð samskipti og framgang verkefna.
  • Greina þarfir starfseminnar og styðja við mótun lausna, einföldun ferla og umbætur á vinnubrögðum.
  • Leiða breytingar og stuðla að farsælli innleiðingu nýrra lausna og fylgja eftir árangri og ávinningi verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Að minnsta kosti fimm ára reynsla af stjórnun umfangsmikilla verkefna á sviði upplýsingatækni, stafrænnar þróunar eða umbóta.
  • Góð þekking á verkefnastjórnun og reynsla af ólíkum aðferðum, svo sem Agile og Scrum.
  • Reynsla af breytingastjórnun, þarfagreiningu og kröfugerð.
  • Þekking á ferlastjórnun og umbótastarfi.
  • Sterk hæfni til að leiða verkefni og fólk að sameiginlegum markmiðum.
  • Góður viðskiptaskilningur og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi og góða vinnuaðstöðu.
  • Heilsu- og hamingjupakka sem meðal annars inniheldur samgöngu- og líkamsræktarstyrk og stuðning við sálfræðiþjónustu.
  • Gott mötuneyti með niðurgreiddum mat.
  • Öflugt starfsmannafélag og aðgang að orlofshúsum víðs vegar um landið.
  • Farsímaáskrift og nettengingu heima.
Það er kostur ef þú hefur
  • Vottun á sviði verkefnastjórnunar, breytingastjórnunar eða umbótastarfs.
  • Reynslu af umfangsmiklum kerfisinnleiðingum eða alþjóðlegum verkefnum.
  • Áhuga á nýtingu gervigreindar og nýrrar tækni til að einfalda ferla og þróa vinnubrögð.
Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur29. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar