
Víking Brugghús CCEP á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður sem hefur djúpar rætur og 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Víking Brugghús á Akureyri er mikilvægur hluti af fyrirtækinu þar sem við bruggum og framleiðum okkar gæðabjór. Við bjóðum upp spennandi og lífilegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsmanna. Sjálfbærnistefnan okkar er metnaðarfull og stikar leiðina að betra samfélagi og eru starfsmenn hvattir til að taka þátt í að fylgja henni eftir, sýna frumkvæði og vinna að sífelldum úrbótum.
Vélvirki/vélstjóri hjá Víking brugghús á Akureyri
Víking Brugghús á Akureyri auglýsir eftir metnaðarfullum vélvirkja/vélstjóra til að starfa í tæknideild hjá fyrirtækinu. Viðkomandi mun fást við spennandi verkefni sem snúa að framleiðslubúnaði og endurbótum á vélbúnaði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald og umsjón á tækja og vélbúnaði
- Ábyrgð og utanumhald með viðhaldskerfi brugghússins
- Samskipti við birgja
- Innkaup á varahlutum
- Viðhald fasteigna og lóðar fyrirtækisins
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Réttindi til að starfa sem vélvirki eru nauðsynleg
- Reynsla á sviði viðhalds véla og tækja
- Reynsla af öryggis- og gæðamálum í framleiðslu er kostur
- Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
- Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er nauðsynleg
- Lausnamiðuð hugsun og góðir skipulagseiginleikar
- Jákvætt viðhorf og sveigjanleiki
Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur19. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Furuvellir 18, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viðgerðarmaður á Selfossi
Steypustöðin

Tæknimaður - Kæli- og frystibúnaður
Fossraf ehf

Vélvirki í tæknideild
Myllan-Ora

Stálsmiður/vélvirki/ málmsuða
Suðulist

Tæknimaður í vinnslu
First Water

Verkstæðismaður
Loftorka Reykjavík ehf.

Tæknimaður í umsjón og viðhaldi vélbúnaðar við tæknideild
Coripharma ehf.

Þjónustumaður á verkstæði
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Sérfræðingur í vélarafmagni
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Viðgerðarmaður
Vélavit ehf

Viðgerðarmaður á vélaverkstæði
Vélfang ehf

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Höfuðborgarsvæði
Frumherji hf