
Vatnsendaskóli
Í Vatnsendaskóla er lögð rík áhersla á fjölbreytta kennsluhætti og einstaklingsmiðað nám. Áhersla er lögð á umhverfis-, rannsóknar- og vettvangsnám. Gildi skólanámskrár byggjast á virðingu, vináttu, samvinnu og skapandi skólastarfi. Sérstök áhersla er lögð á náttúrufræði og raungreinar og útikennsla er ríkur þáttur í skólastarfinu þar sem skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn.
Í Vatnsendaskóla er litið á hvern árgang sem eina heild. Kennarar árgangsins bera sameiginlega ábyrgð á nemendum og vinna saman að því að skipuleggja nám nemenda. Þetta fyrirkomulag stuðlar að sveigjanleika og býður upp á möguleika að breyta hópum í samræmi við viðfangsefni og aukna samkennslu þar sem það á við. Þannig nýtist styrkur og hæfni starfsfólks nemendum.

Vatnsendaskóli óskar eftir umsjónarkennurum
Vatnsendaskóli óskar eftir umsjónarkennurum á á yngsta- og miðstigi skólaárið 2025-2026. Unnið er í teymum kennara sem sjá sameiginlega um ábyrgð á árgangi.
Vatnsendaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 570 nemendur og 95 starfsmenn. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn. Áhersla er lögð á teymiskennslu, útikennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta, samvinna og skapandi starf. Góður starfsandi er í skólanum og vinnuaðstæður góðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjónarkennsla á yngsta- og miðstigi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennsluréttindi.
- Faglegur metnaður og frumkvæði.
- Góð færni í að starfa í teymi.
- Þolinmæði og mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Þekking á kennslu með notkun rafrænna miðla æskileg.
- Stundvísi og áreiðanleiki.
- Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt23. apríl 2025
Umsóknarfrestur5. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Funahvarf 2, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Urriðaholtsskóli auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra
Urriðaholtsskóli

Leikskólinn Hæðarból auglýsir eftir leikskólakennara
Garðabær

Leikur og málörvun - HOLT
Leikskólinn Holt

Fjölhæfur grunnskólakennari
Skaftárhreppur

Umsjónarkennari í Varmárskóla
Varmárskóli

Kennari í sérdeild - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennari ungbarnaleikskóla
Seltjarnarnesbær

Deildarstjóri ungbarnaleikskóla
Seltjarnarnesbær

Deildarstjóri, Leikskólinn Kæribær, Fáskrúðsfirði
Fjarðabyggð

Leikskólakennari við Leikskólann Kærabæ, Fáskrúðsfirði
Fjarðabyggð

Grunnskólakennari á unglingastigi
Tjarnarskóli ehf

Aðstoðarforstöðumaður í frístundasel
Varmárskóli