
Varnir og eftirlit (VE) leita að öflugum einstaklingi í fullt starf við meindýravarnir og eftir
Starfið er fjölbreytt og sjálfstætt þar sem unnið er við meindýravarnir, reglubundið eftirlit og ýmis sérverkefni hjá viðskiptavinum okkar. Við leitum að áreiðanlegum og þjónustulunduðum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni.
Reynsla eða réttindi sem meindýraeyðir eru kostur en ekki skilyrði. Við getum séð um nauðsynlega þjálfun og réttindi fyrir réttan einstakling.
Um er að ræða fullt starf. Almennur vinnutími er 09:00–17:00, auk möguleika á tilfallandi yfirvinnu.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Við hvetjum öll sem telja sig eiga erindi í starfið til að sækja um, óháð því hvort viðkomandi hafi áður starfað við meindýravarnir.
Umsóknarfrestur er til og með 4. september 2026.
Frekari upplýsingar og umsóknir: [email protected]
- Meindýravarnir, eftirlit og önnur sérverkefni
- Reglubundnar þjónustuheimsóknir til viðskiptavina
- Skipulagning og undirbúningur verkefna í samvinnu við yfirmann deildarinnar
- Skráning og eftirfylgni verkefna
- Að tryggja að verkefni séu unnin samkvæmt skilgreindum gæðastöðlum og verkferlum
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
Við leitum að einstaklingi sem
- er stundvís, áreiðanlegur og samviskusamur
- hefur góða samskiptahæfni og þjónustulund
- getur unnið sjálfstætt og skipulagt verkefni sín vel
- hefur gilt ökuskírteini
- hefur mjög góða enskukunnáttu
- er tilbúinn að læra og takast á við fjölbreytt verkefni
Kostur ef þú
- hefur réttindi eða reynslu sem meindýraeyðir
- hefur skotvopnaleyfi
- talar íslensku
- Möguleiki á að hafa vinnubíl til umráða og fara á honum til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og fjölbreyttir starfsmannaviðburðir
- Góður starfsandi og skemmtilegur vinnustaður
- Fjölbreytt og sjálfstætt starf
- Þjálfun og möguleiki á að öðlast réttindi sem meindýraeyðir
Enska
Íslenska










