

Vaktstjóri
Melabúðin auglýsir eftir vaktstjóra í fullt starf. Vaktstjóri ber ábyrgð á því að framfylgja daglegum verkefnum og markmiðum verslunarinnar í samvinnu við verslunarstjóra.
Við leitum að öflugum, glaðlyndum og lausnamiðuðum einstaklingi í sælkeraverslun sem leggur metnað sinn í góða þjónustu og er með eitt breiðasta vöruúrval landsins í matvöru.
Samkeppnishæf laun í boði fyrir starf sem býður upp á fjölbreytt verkefni, margvísleg tækifæri til að vaxa í starfi, m.a. að móta vöruúrval og útlit verslunar sem á traustan hóp viðskiptavina.
Melabúðin er opin alla virka daga frá kl. 9-20 og allar helgar frá kl. 10-20. Unnið er á vöktum. Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri - [email protected] - 5510224
· Leiða samhentan starfsmannahóp til að veita viðskiptavinum einstaka þjónustu
· Daglegt skipulag og ábyrgð á verkferlum og gæðakröfum
· Almenn verslunarstörf og úrlausn mála sem upp kunna að koma
· Birgðaeftirlit, vörupantanir og umsjón með móttöku sendinga
· Samvinna við kjötstjóra um kjötborð og eldhús
· Almenn vaktstjórn og ábyrgð á uppgjöri og fjármunum
· Þjálfun starfsmanna og umsjón með mönnun vakta
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
· Metnaður í sölumennsku og upplifun viðskiptavina
· Reynsla af þjónustustörfum skilyrði
· Reynsla í vaktstjórn er kostur
· Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
· 20 ára aldurstakmark
· Bílpróf kostur
Samkeppnishæf laun í boði fyrir réttan einstakling.

