
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík undirbýr samfélagið fyrir framtíðina. Við stöndum framarlega á alþjóðavísu í að skapa og miðla þekkingu með siðferði, jafnræði og sjálfbærni að leiðarljósi.
Háskólinn er hreyfiafl í þróun atvinnulífs og samfélags, með virku samstarfi og menntun sem mætir þörfum þeirra.
Háskólinn býður framúrskarandi nám, stuðning og starfsaðstöðu. Hann styrkir nemendur í að byggja brýr á milli fræðigreina, tengir þau við atvinnulíf og býður upp á námsleiðir sem hægt er að sníða að eigin hæfni og áhugasviðum. Í rannsóknarstarfi leggur háskólinn áherslu á samvinnu, skapandi hugsun og heilindi.
Háskólinn er driffjöður nýsköpunar í gegnum hagnýtingu rannsókna og þjálfun fyrir alla nemendur. Sjálfbærni er undirliggjandi þáttur í námi, rannsóknum og rekstri háskólans.

Upplýsingafræðingur á bókasafn HR - Mótaðu framtíð þekkingar
Bókasafn Háskólans í Reykjavík leitar að öflugum og metnaðarfullum upplýsingafræðingi til starfa í teymi sem sinnir fræðslu og stuðningi við nemendur.Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í lifandi háskólaumhverfi þar sem lögð er áhersla á þjónustu, nýsköpun og framúrskarandi námsupplifun. Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á kennslu, upplýsingalæsi og því að styðja nemendur við rannsóknir, heimildavinnu og ábyrga notkun upplýsinga og gervigreindar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vera tengiliður bókasafns við ákveðnar deildir innan HR.
- Skipuleggja og sinna kennslu í upplýsingalæsi fyrir nemendur.
- Veita einstaklingsráðgjöf og taka á móti nemendum í tímapöntunum vegna heimildaleitar og heimildavinnu.
- Taka þátt í uppbyggingu nýs ritvers bókasafnsins og þróun þjónustu sem styður nemendur í fræðilegri ritun og verkefnavinnu.
- Leiðbeina nemendum um ábyrga og gagnrýna notkun gervigreindar í námi og verkefnavinnu.
- Þróa og viðhalda leiðbeiningum, kennsluefni og öðru fræðsluefni.
- Taka virkan þátt í þróun þjónustu bókasafnsins og teymisvinnu innan safnsins.
- Sinna upplýsingaþjónustu og öðrum tilfallandi verkefnum bókasafnsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistaragráða í upplýsingafræði eða sambærileg menntun.
- Áhugi á kennslu og miðlun þekkingar.
- Kennslureynsla eða reynsla af fræðslu er kostur.
- Áhugi á og þekking á gervigreind og notkun hennar í háskólanámi er kostur.
- Áhugi á og/eða reynsla af þróun náms- og ritstuðnings fyrir háskólanemendur er kostur.
- Rík þjónustulund og mjög góð samskiptahæfni.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð skipulagshæfni.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Góð tölvu- og tæknikunnátta.
Auglýsing birt24. nóvember 2026
Umsóknarfrestur8. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
SamviskusemiSkipulagStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
