Aveo ehf.
Aveo ehf.

Unreal Engine Technical Artist / Generalist

Notaðu þekkingu þína á leikjatækni til að gera flugheiminn öruggari! Markmið Aveo er að auka öryggi á flugvöllum með þjálfun ökumanna í stafrænum eftirlíkingum (Digital Twin) af flugvöllum. Aveo þróar Orion Driver, aksturshermi fyrir flugvelli sem er nú þegar í notkun á stórum flugvöllum í Bretlandi, Ástralíu og á Íslandi.

Við leitum að öflugum Unreal Engine Generalist í teymið okkar. Í þessu hlutverki munt þú brúa bilið á milli hönnunar, forritunar og velgengni viðskiptavina. Þú munt hjálpa til við að fínstilla vinnuferla, auka sjónræn gæði og tryggja að ökuhermirinn okkar skili frábærri upplifun til viðskiptavina Aveo.

Þetta er fullkomið tækifæri fyrir einhvern sem hefur áhuga á bæði tæknilegum og listrænum hliðum Unreal Engine, góða yfirsýn í flóknum verkefnum, áræðin(n) og nákvæm(ur) og til í að leysa áhugaverð vandamál með okkur.

Helstu verkefni:

  • Unreal Engine 5: Vinna náið með Unreal Engine 5, nýta Blueprint forritun og sjá um almenna uppsetningu og stillingar á Actors.
  • Hönnunargögn (Asset Pipeline): Búa til, fínstilla og flytja inn þrívíddarmódel og áferðir (textures) og tryggja að þau flæði vel inn í Unreal Engine.

  • Gæðaprófanir og vélbúnaður: Prófa og sannreyna útgáfur af ökuherminum á ýmsum vélbúnaði (t.d. VR gleraugu, stýri, pedala o.s.frv.) áður en hann er afhentur til viðskiptavina.

  • Brúa bilið: Vera tengiliður á milli hönnunar og tækni og tryggja að sjónrænu gögnin skili frábærri frammistöðu án þess að slaka á gæðum.

  • Verkefnastjórn og innleiðingar: Umsjón með innleiðingu á ökuherminum til nýrra viðskiptavina, stýra tímalínum og tryggja að Orion Driver séu innleiddur á farsælan hátt.

Hverjum erum við að leita að:

  • Þú hefur einlægan áhuga á bæði tæknilegum og listrænum hliðum Unreal Engine.

  • Þú hefur framúrskarandi skipulagshæfileika og treystir þér fullkomlega til að stýra verkefnum og tæknilegum innleiðingum.

  • Þú hefur grunn færni í Blender.

  • Þér líður vel í vinnuumhverfi UE5.

  • Þú hefur grunnskilning á React og almennri vefþróun.

  • Þér er virkilega annt um gæði, smáatriði og lokaútkomuna fyrir notandann.

  • Þú ert fljót(ur) að læra, aðlögunarhæf(ur) og tilbúin(n) að stökkva í fjölbreytt verkefni eftir þörfum.

Hvað bjóðum við?

  • Sprotaumhverfi þar sem þú hefur bein áhrif á vöruna, framtíðarsýn og vinnustaðamenninguna alveg frá grunni.

  • Samkeppnishæf laun.

  • Kauprétt (Stock options).

  • Vinnu við verkefni sem skipta máli, þar sem leikjatækni og flugiðnaður mætast.

Aðrar upplýsingar:

  • Staðsetning: Á skrifstofu okkar í Ármúla, Reykjavík.

  • Umfang: 100% framtíðarstarf.

Við erum lítið, metnaðarfullt teymi og þetta er tækifærið þitt til að slást í hópinn snemma og hafa raunveruleg áhrif.

Auglýsing birt21. febrúar 2026
Umsóknarfrestur13. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Ármúli 42, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BlenderPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.ReactPathCreated with Sketch.TölvuleikjaforritunPathCreated with Sketch.Unreal
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)