

Umsjón fasteigna
Starfsmaður í umsjón fasteigna hjá ION Hótel og Hótel Von
ION Hótel og Hótel Von leitar að öflugum og úrræðagóðum starfsmanni í umsjón fasteigna. Við leitum að einstaklingi sem hefur ánægju af fjölbreyttum verkefnum, sýnir frumkvæði og er tilbúinn að leggja sitt af mörkum við að halda hótelinu og umhverfi þess í sem bestu ástandi.
Helstu verkefni eru almennt viðhald fasteigna og búnaðar, reglubundið eftirlit, einfaldar viðgerðir, aðstoð við framkvæmdir og ýmis önnur tilfallandi verkefni. Starfið hentar vel handlögnum einstaklingi sem vinnur sjálfstætt, bregst hratt við og á auðvelt með að vinna með öðrum.
Við leitum að einstaklingi sem er áreiðanlegur, ábyrgur og lausnamiðaður. Góð almenn verkþekking og reynsla af viðhaldi eða framkvæmdum er kostur. Vinnuvélaréttindi og/eða meirapróf eru einnig kostur en ekki skilyrði. Ökuréttindi eru nauðsynleg. Íslenskukunnátta er ekki skilyrði, en umsækjandi þarf að geta átt góð samskipti og fylgt leiðbeiningum á íslensku eða ensku.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og lifandi starf í einstöku umhverfi, gott samstarfsfólk og tækifæri til að vaxa í starfi. Vinnutími og starfshlutfall eru samkvæmt samkomulagi.
Ef þú ert jákvæður, vinnusamur og tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni viljum við gjarnan heyra frá þér. Sendu okkur umsókn og stutta lýsingu á reynslu þinni. Við hlökkum til að kynnast þér!
Property Management Employee at ION Hotels and Hotels Von
ION Hotels and Hotels Von is looking for a dynamic and resourceful property management employee. We are looking for an individual who enjoys a variety of projects, shows initiative and is willing to contribute to keeping the hotel and its surroundings in the best possible condition.
The main tasks are general maintenance of properties and equipment, regular inspections, simple repairs, assistance with construction and various other occasional tasks. The job is well suited to a hands-on individual who works independently, responds quickly and is easy to work with others.
We are looking for an individual who is reliable, responsible and solution-oriented. Good general project knowledge and experience in maintenance or construction is an advantage. Heavy machinery license and/or a higher qualification are also an advantage but not a requirement. Driving license is necessary. Icelandic language skills are not a requirement, but the applicant must be able to communicate well and follow instructions in Icelandic or English.
We offer a diverse and vibrant work environment, great colleagues and opportunities for career growth. Working hours and work ratio are negotiable.
If you are positive, hardworking and ready to take on a variety of tasks, we would like to hear from you. Send us your application and a brief description of your experience. We look forward to meeting you!
Umsjón fasteigna
Íslenska
Enska










