Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Tónmenntakennari - Víðistaðaskóli

Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða kennara í tónmennt

Við í Víðistaðaskóla leitum eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi kennara í tónmennt, sem bætist í góðan hóp annarra list og verkgreinakennara sem starfa við skólann.

Í Víðistaðaskóla er rík hefð fyrir góðri og öflugri tónmenntakennslu. Tónmenntakennarinn sér um samsöng nemenda á yngsta stigi, kemur að kennslu í list og verkgreinarúllum og valgreinum á yngsta og miðstigi. Á hverju ári setja nemendur í 10. bekk söngleik á svið og þar gefst tónmenntakennara tækifæri á að koma að spennandi og skapandi verkefni. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.

Í skólanum eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð- virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.

Hjá okkur ríkir góður starfsandi og samheldni meðal þeirra sem í skólanum starfa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í tónmennt á öllum stigum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, í síma 664-5890, [email protected]

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2025

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt25. apríl 2025
Umsóknarfrestur7. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar