
TM
TM leggur ríka áherslu á kynjajafnrétti og jafnréttismál eru meðal forgangsatriða í þróun og framtíðarsýn félagsins. Frá 2014 hefur TM hlotið jafnlaunavottun VR og það var með fyrstu fyrirtækjum til að fá viðurkenningu Jafnréttisvísis Capacent.
Það er TM sérstakt kappsmál að skapa lifandi og kraftmikið starfsumhverfi og vera aðlaðandi vinnustaður fyrir hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk. Aðeins þannig getur félagið þróast og eflst með það að marki að mæta kröfum framtíðarinnar.

Tjónafulltrúi persónutjóna
Það er okkur hjá TM kappsmál að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu. Við auglýsum nú laust tímabundið starf tjónafulltrúa til 12 mánaða í teymi persónutjóna og leitum að jákvæðum einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfileika, ríka þjónustulund og metnað.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn afgreiðsla vegna persónutjóna
- Móttaka og skráning tjónstilkynninga
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini, lögmannsstofur og samstarfsaðila
- Gagnaöflun, útreikningar og greiðsla kostnaðar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking á tryggingastarfsemi er kostur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og metnaður
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og hæfni til að vinna vel í hópi
- Nákvæmni í starfi og markviss og fagleg vinnubrögð
Auglýsing birt19. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiNákvæmniSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

