
Bakarameistarinn
Bakarameistarinn hefur verið í fararbroddi í sinni grein allt frá því hjónin Sigþór Sigurjónsson bakarameistari og Sigrún Stefánsdóttir stofnuðu fyrirtækið í janúar árið 1977. Opnun Bakarameistarans í Suðurveri olli svo að segja straumhvörfum á sínu sviði, enda höfðu Reykvíkingar ekki áður kynnst viðlíka þjónustu og vöruúrvali eins og Bakarameistarinn varð strax kunnur fyrir. Markmið fyrirtækisins voru snemma mjög skýr; að vera í fararbroddi með nýjungar og öfluga vöruþróun, bjóða upp á mikið vöruúrval, hraða og örugga þjónustu, góða fagmenn í bakstrinum og síðast en ekki síst að nota einungis gæðahráefni til að búa til úrvalsvöru. Þessum atriðum hefur ávallt verið haldið til haga í rekstrinum.
Bakarameistarinn starfrækir nú 9 kaffihús á höfuðborgarsvæðinu og enda þótt starfsfólki hafi fjölgað úr 20 árið 1977 í rösklega 140 manns hafa markmið hans ekkert breyst og eru alltaf jafn skýr; við þjónum þér!

Tiltekt pantana og pökkun - snemma morguns
Bakarameistarinn Suðurveri leitar eftir ábyrgðarfullum, heilsuhraustum og duglegum einstaklingum í tiltekt pantana
Helstu kröfur eru sjálfstæð, skipulögð vinnubrögð, sveigjanleiki og jákvæðni. Íslenskukunnátta er nauðsynleg.
Vinnutími er : Mán - fim 05:00-13.00 og Föst : 04.00 - 12.00
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst
Áhugasamir umsækjendur geta fyllt út umsókn á heimasíðu okkar bakarameistarinn.is
Auglýsing birt31. mars 2026
Umsóknarfrestur5. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stigahlíð 45-47, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsfólk í veftínslu hjá ILVA Kauptúni - Hlutastarf
ILVA ehf

Sumarstarfsmaður
JGR umboðs- og heildverslun ehf

Afgreiðsla, lagerstarf og slökkvitækjaþjónusta.
Ólafur Gíslason og Co hf.

Starfsmaður í pökkun
Lýsi

Svæðisstjóri á lager í Bolungarvík
Arna

Sölufulltrúi í timbri og leigu (sumarstarf) - BYKO Suðurnesjum
Byko

Sölufulltrúi í lagnadeild (sumarstarf) - BYKO Suðurnesjum
Byko

Fagkaup óskar eftir vönum bílstjóra með meiraprófsréttindi
Fagkaup ehf

Innkaupafulltrúi
Steypustöðin

Reikningagerð og móttaka - Verkstæði Vélrásar
Vélrás

Bílstjóri
Álfaborg ehf

Lagerstarfsmaður
Slippurinn Akureyri ehf.