

Texta- og hugmyndasmiður og efnisritstjóri
Bláa Lónið leitar að öflugum einstaklingi í stöðu texta- og hugmyndasmiðs/efnis-ritstjóra. Starfið heyrir undir markaðsdeild Bláa Lónsins hf. en deildin ber ábyrgð á markaðssetningu allra vörumerkja fyrirtækisins. Viðkomandi mun vera hluti af samheldnu teymi sérfræðinga sem gegna ólíkum hlutverkum og vinnur ötullega að því að markaðssetja vörur og þjónustu félagsins um allan heim.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Textagerð á ensku og íslensku fyrir vörumerki félagsins, s.s. auglýsingatextar, fréttatilkynningar, samfélagsmiðlatextar, vefsíðutextar, handritsgerð fyrir kvikmyndað efni, textun á lifandi efni, þýðingar, prófarkalestur og ritstýring.
-
Tryggja að rödd og tónn hvers vörumerkis sé skýr og reglum framfylgt.
-
Hugmyndavinna, greiningar á tækifærum og samstarf þvert á deildir.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða haldbær reynsla af sambærilegu starfi.
-
Þekking á eða reynsla af vefumsjónarkerfum er kostur.
-
Áhugi á nýrri tækni sem nýtist í starfi.
-
Yfirgripsmikil þekking á helstu ritvinnsluforritum, SharePoint-reynsla er kostur.
-
Framúrskarandi ensku- og íslenskukunnátta er skilyrði, bæði í ræðu og riti.
-
Næmni fyrir blæbrigðum tungumálsins og yfirgripsmikil málfræðiþekking á ensku og íslensku.
-
Lausnamiðað hugarfar og auga fyrir smáatriðum.
-
Færni í samskiptum, jákvæðni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Viðkomandi mun hafa starfsstöð í skrifstofuhúsnæði Bláa Lónsins í Urriðaholti í Garðabæ.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars.
Bláa Lónið er lifandi, skemmtilegur og fjölbreyttur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Með framúrskarandi samvinnu allra starfsmanna er markmiðið að skapa einstaka upplifun fyrir gesti.
Nánari upplýsingar um starfið veita mannauðssérfræðingar Bláa Lónsins í síma 420-8800.
Íslenska
Enska