Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Tanntæknir í Tannlæknadeild

Laust er til umsóknar 85% starf tanntæknis á aðgerðarstofu Tannlæknadeildar Háskóla Íslands. Vinnutíminn er breytilegur og fer eftir árstíðabundnu álagi í tengslum við kennslu í deildinni. Starfshlutfall á ársgrundvelli er 85%, 100% á kennslutíma og lægra hlutfall utan hans. Kennslutímabilið er að jafnaði frá miðjum ágúst til loka nóvember á haustmisseri og frá byrjun janúar til loka apríl á vormisseri. Vinnutími og endanlegt starfshlutfall verður skipulagt í samráði við þann sem er ráðinn.

Tannlæknastofa Tannlæknadeildar (klíníkin) veitir almenningi, nemendum og kennurum bæði almenna og sérhæfða þjónustu. Tannlæknastofan er kennslustofnun líkt og spítalar eru fyrir verklegt nám annarra heilbrigðisstétta. Í samstarfi við Fjölbrautarskólann í Ármúla fer einnig fram kennsla í tanntækni, einni af stoðgreinum tannlækninga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúningur fyrir verklega kennslu og aðstoð á aðgerðastofu

  • Þjónusta og samskipti við nemendur og starfsfólk deildar

  • Stuðningur við klíníska kennslu

  • Vinna við sótthreinsun

  • Rafræn skráning sjúkragagna og röntgenmyndatökur

  • Umsjón að hluta til með skurðstofu

  • Móttaka og símsvörun

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tanntæknamenntun frá námsbraut tanntækna er æskileg

  • Reynsla af sambærilegum verkefnum er æskileg

  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund

  • Frumkvæði, metnaður og nákvæmni í starfi

  • Góð almenn tölvukunnátta

Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur26. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vatnsmýrarvegur 16, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar