
Tanntæknir / Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannlæknastofan Brostu óskar eftir að ráða fjölhæfan og jákvæðan starfsmann í 80–100% starf.
Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf í góðu starfsumhverfi þar sem ríkir samheldni, traust og góður starfsandi. Á stofunni er góð aðstaða og lögð áhersla á fagmennsku, þjónustulund og jákvæð samskipti.
Helstu verkefni
-
Aðstoð við tannlækna við ýmis störf
-
Samskipti og þjónusta við sjúklinga
-
Sótthreinsun og umsjón með tækjum og áhöldum
-
Önnur tilfallandi verkefni á stofunni, s.s. símsvörun og afgreiðsla
Við leitum að einstaklingum sem
-
Eru skipulagðir og vinna markvisst
-
Hafa jákvætt viðhorf og ríka þjónustulund
-
Geta unnið með mörg verkefni samtímis og haldið yfirsýn
-
Sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Eru traustir og eiga auðvelt með samskipti
Menntun í tanntækni eða reynsla af sambærilegu starfi er æskileg en ekki skilyrði fyrir réttan aðila.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2026. Umsóknir verða þó skoðaðar jafnóðum og þær berast og staðan kann að verða ráðin áður en umsóknarfrestur rennur út.
Íslenska










