

Taktu þátt í að móta framtíð læknisþjónustu á Suðurlandi
Sérfræðilæknar óskast til starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) á Selfossi.
HSU óskar eftir að ráða sérfræðilækna á Selfoss. Á Selfossi starfa sérfræðingar á Lyflækningadeild, Bráðamóttöku, Bráðalyflækningadeild og Heilsugæslu. Allar einingar vinna náið saman að því að efla og þróa þjónustu við skjólstæðinga.
Af hverju HSU?
Á HSU færðu tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustunnar, taka þátt í ákvörðunum og vinna í umhverfi þar sem fagmennska, samstarf og nýsköpun eru í forgrunni.
HSU er stofnun á mikilli sókn. Hér eru stuttar boðleiðir, náið samstarf milli fagstétta og raunverulegt svigrúm til að hafa áhrif á starfsemi og þróun deildanna. Hugmyndir fá hljómgrunn og starfsfólk hefur tækifæri til að móta þjónustuna til framtíðar.
Markmið okkar er að veita skjólstæðingum örugga, skilvirka og samfellda þjónustu þar sem fagmennska, gæði og samstarf eru í fyrirrúmi. Þessi samfella skapar einstakt tækifæri til að nýta breiða sérfræðiþekkingu og fylgja skjólstæðingum í gegnum meðferðarferlið.
Við leggjum ríka áherslu á faglega þróun, símenntun og gæðastarf. Jafnframt viljum við skapa vinnuumhverfi þar sem jafnvægi milli starfs og einkalífs er raunhæft markmið.
Hjá okkur færðu
-
Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi.
-
Fjölbreytt og krefjandi klínískt starf.
-
Öflugt teymi þar sem samvinna og gagnkvæm virðing eru leiðarljós.
-
Góð tækifæri til sí- og endurmenntunar og faglegrar þróunnar.
-
Sveigjanleika varðandi ráðningarfyrirkomulag.
-
Starf þar sem jafnvægi milli vinnu og einkalífs skiptir máli.
Ef þú vilt starfa þar sem þú getur haft áhrif, þróast í starfi og verið hluti af metnaðarfullu teymi sem vinnur að uppbyggingu heilbrigðisþjónustu til framtíðar, þá viljum við heyra frá þér.
-
Veita skjólstæðingum örugga, faglega og persónumiðaða heilbrigðisþjónustu.
-
Greina, meðhöndla og fylgja eftir skjólstæðingi í samræmi við eðli starfs og sérsviðs.
-
Taka virkan þátt í þverfaglegu samstarfi með öðrum heilbrigðisstéttum og einingum HSU.
-
Stuðla að samfellu og gæðum í þjónustu með markvissum samskiptum og samvinnu.
-
Leiðbeina og styðja yngri lækna, sérnámsgrunnlækna og annað heilbrigðisstarfsfólk eftir því sem við á.
-
Hefur íslenskt sérfræðileyfi frá Landlæknisembættinu.
-
Hefur metnað fyrir framúrskarandi þjónustu við sjúklinga.
-
Býr yfir frumkvæði, jákvæðu viðhorfi og vilja til að þróa þjónustuna áfram.
-
Nýtur þess að vinna í þverfaglegu teymi.
-
Hefur áhuga á að leiðbeina yngri læknum og taka þátt í faglegri uppbyggingu.
-
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
-
Ef Íslenska er ekki móðurmál þá er gerð krafa um góða færni og þekkingu í ensku.
Frábært mötuneyti á staðnum
Íslenska